Kirche Jesu Christi der Heiligen der Letzten Tage


JESÚS KRISTUR

Jesús Kristur er sonur Guðs. Jesús Kristur skapaði jörðina undir stjórn Guðs föðurins (Jóhannes 1:10; Hebrebréfið 1:2). Hann er frelsari alls mannkyns.

Jesús var fullkomin fyrirmynd þegar hann lifði á jörðu fyrir um 2000 árum. Hann kenndi í orði og verki á hvaða hátt menn skuli haga eigin lífi og elska Guð og samferðamenn sína. Hann stofnaði kirkju (Efesusbréfið 4:11–14) og veitti okkur trúarskipulag sem nefnt er fagnaðarerindi Jesú Krists.

Jesús þjáðist í Getsemanegarðinum og lét sjálfviljugur líf sitt á krossi og fullgerði þannig friðþæginguna. Með friðþægingu sinni frelsaði hann alla þá frá syndum sem vilja fylgja honum (1. Pétursbréfið 2:21). Friðþægingin gerir mönnum kleift að hljóta fyrirgefningu, ef þeir iðrast einlæglega (Mormónsbók, Mósía 26:30).

Jesús Kristur bjargaði okkar frá dauða með upprisu sinni. Allir menn eiga gjöf upprisu vegna þess að hann sigraði dauðann (Postulasagan 24:15, 1. Korintubréfið 15:22). Jesús Kristur verður dómari okkar að þessu lífi loknu. (Postulasagan 17:31; Jóhannes 5:21; Postulasagan 10:42).

 

 

Meira um "Jesús Krist"