- 08.04.2008 |
Margir fréttamiðlar hafa greint frá nýlegri handtöku Warren Jeffs, eftirlýstum forsprakka fjölkvænismanna, sem verið hefur ofarlega á lista bandarísku alríkislögreglunnar yfir flóttamenn undan réttvísinni.
Kirkja Jesú Krists hinna Síðari daga heilögu, sem oft er nefnd mormónakirkjan, kann að meta að stærstu fréttamiðlarnir eins og CNN hafa hingað til gert greinarmun á kirkjunni og hópi Jeffs. Þeir útskýrðu í fréttaflutningi sínum að þessir tveir hópar væru algjörlega ótengdir hvor öðrum.
Warren Jeffs er ekki Mormóni
Warren Jeffs er ekki meðlimur í Kirkju Jesú Krists hinna Síðari daga heilögu og hefur aldrei verið það.
Mormónar iðka ekki fjölkvæni
Kirkja Jesú Krists hinna Síðari daga heilögu lagði niður iðkun fjölkvænis á árinu 1890.
Árið 1998, sagði Gordon B. Hinckley forseti: „Ég lýsi því eindregið yfir að þessi kirkja hefur alls ekkert að gera með þá sem iðka fjölkvæni. Þeir eru ekki meðlimir þessarar kirkju. Flestir þeirra hafa aldrei verið meðlimir. Þeir eru að brjóta borgaraleg lög. …
Komi í ljós að einhverjir meðlima okkar stundi fjölkvæni, er þeim vísað úr kirkjunni, sem er alvarlegasta refsing sem kirkjunni er tiltæk. Ekki aðeins eru þátttakendur í þessu beinlínis að brjóta borgaraleg lög, þeir eru einnig að brjóta lög þessarar kirkju.
Ekki er til neitt sem heitir „rétttrúnaðarmormónar“ eða „mormóna sértrúnaður“
Hugtakið „mormóni“ er gæluorð eða stuttheiti notað um meðlimi Kirkju Jesú Krists hinna Síðari daga heilögu. Ekki er til neitt sem heitir „rétttrúnaðarmormónar,“ né heldur „mormóna sértrúnaður.“ Rétt hugtak til að lýsa þessum fjölkvænishópum er „fjölkvænishópar.“ Að bæta við orðinu „mormón“ er villandi og ónákvæmt.
Í The Associated Press Stylebook segir: „Hugtakið mormón verður ekki með réttu notað um aðrar Síðari daga heilagra kirkjur sem upp komu við klofninginn eftir dauða [Josephs] Smith.“