Boðskapur frá leiðtogum kirkjunnar - 10.01.2012 |
Margir horfa aðeins á velmegun út frá fjárhagslegu sjónarmiði, en slík þröngsýni nær aðeins til hinna ytri merkja auðlegðar og leiðir til þess að veraldlegar eigur verða fyrst og fremst það sem menn sækjast eftir. Óhjákvæmilegir fylgifiskar þessa eru svo öfund, græðgi og eigingirni. Af þessu leiðir svo að djúp gjá myndast á milli okkar og þarfa samferðafólks okkar, þar með talið fjölskyldu okkar, því tíminn er ekki helgaður því sem mestu skiptir, heldur því sem við sækjumst mest eftir.
Hvað um andlega velmegun?
Við getum hlotið skýran skilning á því að við erum börn okkar himneska föður og að hann hefur sæluáætlun fyrir okkur. Við getum komist til hans að nýju fyrir friðþægingu Jesú Krists og eigin trúfesti. Skilningur á því að hann elskar okkur og gaf okkur boðorð til að hjálpa okkur að takast á við andstreymi lífsins, mun leiða okkur á veg þakklætis fyrir allt það sem við höfum. Jafnvel þótt við höfum litlar veraldlegar eigur, munum við vera þakklát fyrir það sem mestu skiptir:
- Fjölskyldu okkar
- Aðild okkar að kirkju Drottins
- Musterin
- Boðskap lifandi spámanna
- Ritningarnar
Hér er aðeins fátt eitt talið upp af þeim mörgu blessunum sem við fáum notið í jarðlífinu. Löngun okkar dag hvern til að komast nær okkar himneska föður eykur þrá okkar til að halda boðorðin og þar af leiðandi vöxum við andlega.
Í Kenningu og sáttmálum 29:34 segir: „Sannlega segi ég yður þess vegna, að allt er andlegt fyrir mér, og aldrei hef ég gefið yður stundlegt lögmál, né nokkrum manni, né heldur mannanna börnum eða Adam, föður yðar, sem ég skapaði.“
Tíundarlögmálið snýst um trú en ekki peninga. Það er andlegt lögmál og þegar við lifum eftir því sýnir það andlega velmegun okkar og umhyggju fyrir öðrum og er kærleikstjáning okkar til Guðs og þakklætisvottur fyrir allt sem við höfum þegið.
Alltaf þegar ég útfylli gjafaseðilinn minn, til að greiða Drottni tíund og aðrar fórnir, finn ég djúpa gleði yfir framlagi mínu til að byggja upp ríki Guðs. Ég veit að ég er að hjálpa þeim sem hafa jafnvel minna en ég hef. En framar öllu þá finn ég að ég er vissulega á vegi velmegunar, því ég vex andlega og tengist minna hinu stundlega, og upplifi aukna trú á fyrirheit spámanna nú og áður:
Malakí 3:10.
„Færið alla tíundina í forðabúrið, til þess að fæðsla sé til í húsi mínu, og reynið mig einu sinni á þennan hátt segir Drottinn allsherjar, hvort ég lýk ekki upp fyrir yður flóðgáttum himinsins og úthelli yfir yður yfirgnæfanlegri blessun.“
„Ég hvet ykkur til að gangast að boði Drottins um að „[reyna hann] einu sinni á þennan hátt.“ Að greiða tíund ykkar. Að ljúka upp gáttum himins. Þið munuð þá njóta yfirgnæfanlegra blessana fyrir hlýðni ykkar og hollustu við lögmál og boðorð Drottins. Öldungur Robert D. Hales, í Tólfpostulasveitinni ‒ aðalráðstefna í október 2002.
Sökum tíundarlögmálsins hefur mér lærst í gegnum lífið að meta og skipuleggja rekstrarsjóð fjölskyldunnar, nota skynsamlega þær auðlindir sem við höfum verið blessuð með. Sökum þessa lögmáls hef ég verið blessaður til að sjá betur hvað mikilvægast er fyrir mig og fjölskyldu mína.
Tíund er ekki peningalögmál, heldur trúar- og þakklætislögmál og er vissulega eitt þeirra sem kemur okkur á veg velmegunar. Um það vitna ég í nafni Jesú Krists, amen.