Kirche Jesu Christi der Heiligen der Letzten Tage
Fréttir - 04.02.2008

 

Thomas S. Monson kallaður sem 16. forseti kirkjunnar

Thomas S. Monson er hinn nýji forseti Kirkju Jesú Krists hinna Síðari daga heilögu.  Þetta var tilkynnt á fréttamannafundi í skrifstofubyggingu kirkjunnar í dag.  Monson forseti, 80 ára, tekur við starfi Gordon B. Hinckleys forseta sem lést 27. janúar síðastliðinn. 

Hinn nýji leiðtogi kirkjunnar hefur kallað til að þjóna með sér í Æðsta forsætisráði kirkjunnar Henry B. Eyring, 74 ára sem fyrsta ráðgjafa og Dieter F. Uchtdorf, 67 ára, sem annan ráðgjafa.  Saman munu þeir leiða kirkjuna sem telur yfir 13 milljónir um heim allann. 

Einnig var tilkynnt að Boyd K. Packer, 83 ára, er hinn forseti Tólfpostularáðsins.

Hér fyrir neðan er æviágrip Monsons forseta.

Thomas S. Monson forseti hefur þjónað sem fyrsti ráðgjafi í Æðsta forsætisráði Kirkju Jesú Krists hinna Síðari daga heilögu frá 10. nóvember 1985. Hann var vígður postuli og kallaður í Tólfpostulasveitina, sem er næst æðsta ráð kirkjunnar, hinn 4. október 1963, þá 36 ára.

Monson þjónaði sem forseti Kanada-trúboðs kirkjunnar frá 1959 til 1962, með höfuðstöðvar í Toronto, Ontario. Fyrir þann tíma hafði hann þjónað í forsætisráði Temple View stiku í Salt Lake City, Utah, og sem biskup í sömu stiku.
Hann fæddist í Salt Lake City, 21. ágúst 1927, og útskrifaðist sem cum laude frá Utah-háskóla 1948, í viðskiptafræði. Síðar hlaut hann MBA gráðu frá Brigham Young-háskóla. Í apríl 1981 veitti BY-háskóli Monson forseta heiðursdoktorsgráðu í lögum, honoris causa.

Monson forseti þjónaði í sjóher Bandaríkjanna í lok Síðari heimsstyrjaldarinnar. Hann giftist Frances Beverly Johnson 7. október 1948, í Salt Lake-musterinu. Saman eiga þau þrjú börn og átta barnabörn.

Monson forseti starfaði við útgáfu og prentun og ávann sér gott orðspor á þeim vettvangi. Hann hóf störf hjá Deseret News árið 1948, sem framkvæmdastjóri auglýsingadeildar og hjá Newspaper Agency Corporation. Síðar var hann ráðinn sem sölustjóri Deseret News Press, sem var eitt stærsta fyrirtæki í auglýsingaprentun, og svo fenginn til enn meiri ábyrgðarstarfa sem aðalstjórnandi, en þeirri stöðu gegndi hann þegar hann var tilnefndur í Tólfpostulasveitina 1963. Hann var í fjölda ára stjórnarformaður í Deseret News Publishing Co. Monson forseti er fyrrverandi forseti Prentiðnaðarsamtaka Utah og fyrrverandi stjórnarmaður í Prentiðnaðarsamtökum Bandaríkjanna.

Sökum yfirgripsmikillar viðskiptareynslu, starfaði hann í mörg ár sem stjórnarmaður í nokkrum þekktum fyrirtækjum í viðskiptum og iðnaði. Hann þjónar nú sem fjárhaldsmaður Brigham Young-háskóla og Menntastofnunar kirkjunnar.

Frá árinu 1969 hefur Monson forseti þjónað sem stjórnarmaður í framkvæmdanefnd skátahreyfingar Bandaríkjanna.
Í desember 1981 var Monson forseti tilnefndur af Ronald Reagan Bandaríkjaforseta til að þjóna í nefndinni President’s Task Force for Private Sector Initiatives. Hann þjónaði sem slíkur fram til desember 1982, þar til starfi nefndarinnar lauk.

Monson forseti hlaut viðurkenningu Utah-háskóla sem framúrskarandi fyrrverandi nemandi skólans árið 1966. Hann hlaut einnig viðurkenningu Drengjaskátahreyfingar Bandaríkjanna sem nefnd eru Silfur bifurinn (1971) og hina virtu viðurkenningu Silfur vísundann (1978) og æðstu viðurkenningu Alþjóðaskátahreyfingarinnar, Brons úlfinn (1993).  Árið 1998 veittu samtökin National Conference of Community and Justice (áður National Conference of Christians and Jews) Monson forseta viðurkenningu fyrir „ævilanga þjónustu til hagsældar mannkyni og stuðning og hollustu við Utah-fylki.“