Fréttir - 21.09.2008 |

Kirkjumeðlimirnir Ryan Millar og Rich Lamborne áttu drjúgan þátt í gullverðlaunasigri blaksveitar Bandaríkjamanna. Sveitin sigraði Brasilíumenn í fjórum lotum í Ólympíuúrslitunum.
Nokkrir SDH íþróttamenn komu heim frá 2008 sumarleikunum með ólympísk málmverðlaun hangandi um hálsinn.
Nýja Sjálands kúluvarparinn Valerie Vili sagði að hún hafi viljað setja þrýsting á keppunauta sína snemma í úrslitakeppni kvennakeppninnar á Ólympíuleikunum í Peking. Svo að í hinu fyrsta af sínum fimm köstum sem öll voru yfir 20 metra, náði hún besta kastinu 20,56 sem ekki aðeins setti þrýsting á keppinautana heldur vann gullverðlaunin fyrir Vili.
„Að ná toppsætinu er dásamlegt,“ sagði hún skömmu eftir að hafa unnið gullverðlaunin. „Ég get ekki lýst því sem á gengur í huga mínum nákvæmlega núna. Ég hefði ekki getað óskað mér betri dags eða augnabliks.“ Og eftir að hafa tárast á verðlaunapallinum þegar þjóðsöngur Nýja Sjálands var leikinn, var Vili enn upp í skýjunum.
„Ég var so snortin og hamingjusöm,“ sagði hin 23ja ára gamla Rotorua innfædda kona sem nú býr í Auckland. „Okkur tókst það sem við settum okkur að gera hér.“
Amerísku blakkeppendurnir Ryan Millar og Rich Lambourne voru hluti af gullverðlaunahópnum sem sigraði Ólympíumeistara Brasilíumanna í fjórum leikhlutum hinn 24. ágúst.
Bróðir Miller, fyrrum afreksmaður í BYU, náði átta drápum og þremur tálmunum, en fyrrum Cougar leikfélagi Rich Lambourne bætti við 12 viðbótarstigum fyrir sigurliðið.
Sumarleikarnir 2008 voru þriðju Ólympíuleikar Millers. Lambourne, sem þjónaði í trúboði í Japan, var varamaður í Ólympíusveit Bandaríkjanna á 2004 leikunum.
Natasha Kai, kirkjumeðlimur frá Laie, Hawaii, og framherji í kvennalandsliði Bandaríkjanna í knattspyrnu, lék með á lokamínútunum hinn 15. ágúst um gullverðlaunin. Ameríkanarnir sigruði Brasilíuliðið 1-0 í hörkukeppni sem fór í framlengingu.
SDH softball leikararnir Tairia Flowers og Laura Berg voru meðlimir í kvennaliði Bandaríkjanna sem varð undir í keppninni við lið Japans 3-1 í úrslitaleiknum. Kaliforníubúunum tveimur voru afhent silfurverðlaun.
Amerískur sundmaður Lacey Nymeyer kom einnig með Ólimpíusilfur heim til Tucson, Arizona, sem meðlimur í 4x100 metra frjálsrar aðferðar fjórsundsveitinni.