Fréttir - 26.04.2009 |
Kirkjuþegnar voru meðal fórnarlamba mannskæða jarðskálftans sem skók Ítalíu mánudaginn 6. apríl. Hvorki kirkjuþegnar né trúboðar létust eða meiddust í skjálftanum sem var 6.3 á richter en þrjár fjölskyldur eru sagðar hafa misst heimilin sín í hörmungunum.
„Það eru ennþá titringur og eftirskjálftar,“ sagði Jeffrey Acerson trúboðsforseti í Rómar, Ítalíu trúboðinu við Church News miðvikudaginn 8. apríl „Fólks er enn saknað.“
Kirkjubygging, sem þjónar kirkjuþegnum í L´Aquila grein, Rómar stiku, varð fyrir nokkrum skemmdum vegna skjálftans, þar á meðal sprungur í veggjum segir Acerson forseti. Ekki er búið að meta bygginguna eftir jarðskjálftann.
Trúboðarnir sem þjóna á svæðum sem urðu fyrir jarðskjálftanum hafa verið færðir í önnur bæjarfélög samkvæmt Acerson forseti.
Á sama tíma eru leiðtogar í Rómar stiku, undir stjórn Massimo De Feo forseta, að samhæfa framtíðar sjálfboðaliðastarf í samvinnu við Rauða krossinn á svæðinu.
Acerson forseti sagði marga fyrrverandi trúboða sem þjónað hafa á Ítalíu sem og marga kirkjuþegna hafa hringt í skrifstofur kirkjunnar á svæðinu og boðið fram aðstoð.
„Það hefur verið upplífgandi að finna fyrir umhyggjusemi þeirra,“ sagði hann.
Opinberir starfsmenn á Ítalíu hafa sagt Associated Press að um 10-15.000 byggingar hafi annað hvort skemmst eða eyðilagst í 26 borgum, bæjum og þorpum í nágrennið við L´Aquila.