Fréttir - 20.02.2008 |
Það eru rúmlega ein milljón meðlima í kirkjunni sem tala portúgölsku. Þeir geta nú lesið þrenninguna á netinu þar sem kirkjan setti fyrr í þessum mánuði þessar ritningar á netið. Þrennan inniheldur Mormónsbók, Kenning og sáttmála og Hina dýrmætu perlu. Biblían, sem er mikilvæg ritning í Kirkju Jesú Krists hinna Síðari daga heilögu, var ekki sett með í þessari netútgáfu.
Smelltu hér til að lesa ritningarnar á portugölsku.
Fyrir var til staðar á heimasíðu kirkjunnar þrenningin í hljóðskrám. Þær eru ennþá til staðar og þú getur
smellt hér til að hlusta á þær.
Kirkjan hefur áður sett sömu ritningar á netið á ensku, þýsku, frönsku, ítölsku og spænsku. Vinna stendur nú yfir við að setja sömu ritningar í rúmlega 24 öðrum tungumálum á netið.