Kirche Jesu Christi der Heiligen der Letzten Tage
Fréttir - 29.08.2010

 

Ný dreifispjöld

Hin nýju "Dreifispjöld" munu berast öllum deildum og greinum nú í sumar. Með spjöldum þessum, sem Kirkja Jesú Krists hinna Síðari daga heilögu hefur látið útbúa, er auðvelt og þægilegt fyrir meðlimi kirkjunnar að miðla fagnaðarerindinu.  Öldungur Dallin H. Oaks sagði þau vera "af þeirri stærð að auðvelt er að hafa þau í skyrtuvasa eða veski, í þeim tilgangi að bjóða vinum og vandamönnum frítt kirkjuefni, svo sem myndbönd eða eintak af Mormónsbók, og á þeim er símanúmer sem hægt er að hringja í til að biðja um efnið. Á spjöldunum er vinum okkar einnig boðið að fara á vefsíðu kirkjunnar."

Nýju spjöldin, sem notuð verða á Evrópusvæðinu, hafa að geyma allt þetta. Þau bjóða kirkjuefni, á þeim er símanúmer sem viðtakandi getur hringt í og tilvísun í vefsíðu viðkomandi lands. Verið er að endurbæta vefsíður landa í þeim tilgangi að kynna spjöldin á viðeigandi tungumálum á boðlegri og skýrari hátt. Þær gera gestum kleift að fara auðveldlega í gegnum efnið og deila með öðrum því sem þeir óska í netsamskiptum. 

Á sama tíma verður einnig öðrum ný hönnuðum spjöldum dreift í allar miðstöðvar fyrir ungt fólk á Evrópusvæðinu. Á þeim eru spurningar um sál mannsins í tengslum við trúmál og boð um að fara á vefsíðu viðkomandi lands, þar sem hægt er að finna svör við þeim spurningum og hlusta og horfa á myndbönd af meðlimum heimasafnaða, þar sem þeir gefa vitnisburð sinn. 

"Spjöldin eru í raun gagnleg. Ég hef séð hvernig þau verða meðlimum til hvatningar og auðvelda þeim að miðla fagnaðarerindinu. Við hvetjum alla meðlimi og æskufólk til að nota þau öllum stundum," sagði öldungur Teixeira, meðlimur í forsætisráði Evrópusvæðisins.