Fréttir - 25.04.2011 |

Á Facebook vefsíðu Laufskálakórs mormóna er getið um tímasetningu og staðsetningu atburða og á henni eru myndir og vörur.
Kirkja Jesú Krists hinna Síðari daga heilögu er ekki ókunnug Facebook. Opinber vefsíða kirkjunnar hóf göngu sína í maí 2008 og á síðustu tveimur árum hefur kirkjan orðin þekktari. Hinar opinberu Facebook vefsíður eru gæddar fjölda greina um hvað sem er, allt frá Laufskálakór mormóna til tækninýjunga SDH.
Facebook er félagsnetmiðill sem hóf göngu sína árið 2004. Í skýrslu MSNBC er greint frá því að 5. janúar 2011 hafi notendur miðilsins verið yfir 600 milljón talsins og fjölgi stöðugt dag hvern. Hann er aðgengilegur á yfir 70 tungumálum og 70 prósent notenda Facebook eru utan Bandaríkjanna. Sniðugt er að nota Facebook til að finna gamla vini, vera í sambandi við fjölskylduna og miðla upplýsingum. Notendur geta búið til Facebook síður með eigin persónusniði og haft þar upplýsingar og myndir sem sýna hvað þeir gera. Þeir geta veitt vinum heimild til að skoða síðurnar sínar. Í janúar 2011 voru "vinir" kirkjunnar á öllum vefsíðum hennar á Facebook, þar á meðal á mormon.org, LDS Newsroom, Mormon Messages og fleirum - yfir ein milljón að tölu.
Á setningardegi BYU-Hawaii í desember 2007 sagði öldungur Russell M. Ballard, í Tólfpostulasveitinni: "Ég hvet ykkur til að taka þátt í umræðunni á Alnetinu, miðla þar fagnaðarerindinu og útskýra á boðskap endurreisnarinnar á einfaldan hátt."
Þið getið skráð ykkur á vefsíðu kirkjunnar á Facebook með því að fara á www.facebook.com/lds. Á Facebook-síðu kirkjunnar eru líka skráðar fjölmargar aðrar kirkjutengdar Facebook-síður. Að sögn umboðsaðilans UN telecommunications, fór fjöldi notenda Alnetsins yfir tvo milljarða í upphafi ársins 2011.