Fréttir - 24.08.2008 |

Öldungur Joshua Subandriyo, svæðishafi Sjötíu, annar frá vinstri, kemur á indónesíska námskeiðið „Vikuleg fjölskyldukvöld“, ásamt leiðtogum ríkisstjórnar og samfélags.
Ríkisstjórn Indónesíu er að taka sögulegt og ákveðið skref í þá átt að efla fjölskylduna um landið allt, með því að fara af stað með áætlunina „Vikuleg fjölskyldukvöld“.
Leiðtogar í félagsmálaráðuneyti og menntamálaráðuneyti landsins hafa átt frumkvæði að því að stuðla að eflingu fjölskyldunnar með því að fræða samfélagsþegna sína og hvetja þá til að hafa „vikuleg fjölskyldukvöld“. Efnisþættir áætlunarinnar voru kynntir á tveggja daga kennslu- og þjálfunarnámskeiði 4. og 5. júlí, með þátttöku kirkjunnar. Opnunarviðburðinn sóttu embættismenn ríkisstjórnar, félagsstarfsfólk og trúarleiðtogar.
Kennslubókin „Family Enrichment Manual,“ eftir Wendy W. Sheffield og Shirley E. Cox frá School of Social Services í BYU-háskóla var kynnt til að aðstoða fjölskyldur. Góðgerðarstofnun SDH, hjálparsamtök kirkjunnar, létu nýverið þýða kennslubókina á bahasa-indónesísku.
H. Bachtair Chamsyah, félagsmálaráðherra Indónesíu, opnaði námskeiðið/starfsþjálfunina og kynnti þemað með orðunum: „Saman mun okkur takast að efla fjölskylduna, sem gera mun þjóðina sterka.“
Dr. Richard B. Miller í BYU-háskóla, yfirmaður School of Family Life; E. Jeffery Hill, prófessor í School of Family Life og Wendy W. Sheffield, prófessor í School of Social Work, kynntu þjálfunaráætlunina. Ræðumenn frá heimalandinu voru dr. Ahmad Mubarok, vel þekktur meðferðarsérfræðingur, og dr. Alwi Shihab, vel þekktur í múslimafræðum og fyrrverandi velferðarráðherra.
Yfir 375 manns sóttur opnunarviðburðinn í Jakarta, og annan daginn komu 150 manns á starfsnámskeiðið „Þjálfun kennara“, í skólanum Sekolah Alam Cikeas nature school í Bogor, sem er í um eins og hálfs klukkustundar akstursfjarlægð frá Jakarta.
Áætlunin „Vikuleg fjölskyldukvöld“ verður innleidd með þjálfun samfélagsborgara til að kenna fjölskyldum sínum reglur ráðvendni, góðra samfélagsþegna og uppbyggjandi siðferðisgilda.
Meðal þeirra sem brugðust vel við áætluninni var Parlindungan Purba, meðlimur í Indonesia House of Representatives frá Norður-Súmötru. Hann sagði: „Námskeiðið er svo áhugavekjandi, því það tekur á mikilvægum málefnum fjölskyldunnar, og ég hef hug á að innleiða áætlunina í Norður-Súmötru.“