Kirche Jesu Christi der Heiligen der Letzten Tage
Fréttir - 09.11.2007

 

Hjálparstarf í Ghana

Clarence Kofi biskup hjálpar til við að dreifa hjálpargögnum kirkjunnar til þeirra svæða í Ghana sem urðu fyrir verstu flóðum í 10 ár. Yfir 300.000 manns voru flutt í burtu þar sem moldarkofar þeirra leystust hreinlega upp í vatninu.

Þegar gríðarlegt úrhelli olli mestu flóðum sem komið hafa í 10 ár í Ghana, var kirkjan meðal þeirra fyrstu sem brugðust við og sendi hjálparbirgðir, þar á meðal hrísgrjónasekki, sykur, baunir, korn, matarolíu, svefndýnur, handklæði og sápur með flutningabílum frá Accra, sem lætur nærri að vera í 30 klukkustunda akstursfjarlægð.

Hjálparstofnun SDH bauð fram aðstoð eftir að Agnes Chigabatia Asangalisa, aðstoðarráðherra í norðausturhluta Ghana koma að máli við öldung Bruce Knudsen og systur Ardis Knudsen, trúboða í hjálparstarfi.
Yfir 300.000 manns hafa verið flutt í burtu og dvelja nú í skólum, félagsmiðstöðvum, kirkjum og opinberum byggingum. Þar sem flest hús á flóðasvæðinu eru gerð úr jarðvegi, leysast þau einfaldlega upp í vatninu. Uppskerur hafa eyðilagst og ekki hefur verið mögulegt að verða sér úti um eldivið til upphitunar eða hreint neysluvatn. Um mörg þorpanna er aðeins hægt að fara í bátum, þar sem vegir og brýr hafa sópast burtu.

„Flóðin eru gríðarleg,“ sagði Benonita Bismarck, yfirstjórnandi hjálparstarfs Rauða krossins í Ghana. Í norðausturhluta Ghana eingöngu hafa 12.220 hektarar búlands legið undir vatni, samkvæmt upplýsingum frá hinu opinbera þar í landi.

„Lífsviðurværi fólks hefur algjörlega verið sett úr skorðum og hungursneyð er yfirvofandi á svæðinu,“ sagði Nana Akrasi-Sarpong, almannafulltrúi í innanríkisráðuneytinu.  Aðstoðarráðherrann tók á móti hjálpargögnunum frá Clarence Kofi biskupi í annarri Madina-deild, Adenta-stiku í Accra, Ghana.