Fréttir - 17.10.2011 |
Hinn 16. október 2011 stöldruðu margir við í sýningarbási Hjálpandi handa í Sony-miðstöðinni í Berlín og tóku þátt í yfirstandandi þjónustuverkefni. Sá daglangi atburður gerði Hjálpandi höndum mormóna kleift að hjálpa Evrópubúum að upplifa anda sjálfboðaliðanna með því að fá þá til að sauma og setja saman litla Broviac-holleggja poka. Í pokum þessum verður varanleg holleggja til að veita lífsnauðsynlega lyfjagjöf, sem gerir krabbameinssjúku barni mögulegt að hreyfa sig að vild. Fimmhundruð þessara poka verða færðir barnaspítulum að gjöf.
Juanita Muenzer, sem hefur fært börnum á krabbameinsdeild pokana, sagði: "Börnin urðu himinlifandi yfir að geta valið sér eigin poka, búna til úr litríku efni sem smitar gleði og kátínu." Hún sagði einnig: "Ég þurfti stundum að snúa mér undan þegar tárin tóku að streyma."
Sjálfboðaliðar Hjálpandi handa mormóna voru auðþekkjanlegir í sínum gulu vestum, sem merkt voru Hjálpandi höndum. Auk hinnar yfirstandandi þjónustu, voru í básnum plaköt, bæklingar og stöðugar myndasyrpur sem sýndu hin ótal verkefni sem þúsundir mormóna í Hjálpandi höndum hafa unnið að víða um Evrópu. Boð þeirra er: "Gangið til liðs við okkur og látið að ykkur kveða!"
Karlheinz Scherer, yfirmaður almannatengsla Kirkju Jesú Krists hinna Síðari daga heilögu í Evrópu, sagði: "Við hyggjumst sýna fram á hér í Berlín að með því að þjóna og gefa af tíma okkar er hægt er að auðvelda alvarlega sjúku barni að lifa með sjúkdómi sínum. Tilefni Hjálpandi handa er einfalt: Við gerum þetta því við viljum fylgja fordæmi Jesú Krists. Við gerum þetta því við viljum hjálpa. Við gerum þetta því við erum sannfærð um að við getum við hamingjusöm ef við hugsum ekki aðeins um sjálf okkur."
Hjálpandi hendur mormóna eru samtök stofnuð af Kirkju Jesú Krists hinna Síðari daga heilögu, sem veita samfélagsþjónustu og líkna nauðstöddum í náttúruhörmungum. Á síðasta ári lögðu um 9.000 sjálfboðaliðar víða um Evrópu til 34.000 klukkustundir í þjónustu. Þau verkefni voru meðal annars hjálparstarf eftir aurskriður yfir bæi í Ungverjalandi og á flóðasvæðum í Tékklandi. Fórnarlömb á þessum svæðum sögðu þessa hundruð sjálfboðaliða, í hinum áberandi gulu vestum Hjálpandi handa, vera "hinn gula her" og sögðu: "Hjálpandi hendur mormóna hafa unnnið kraftaverk!"
Önnur þjónustuverkefni sem sjálfboðaliðar Hjálpandi handa mormóna hafa unnið að eru samfélagsverkefni, svo sem hreinsun og fegrun skóga, stranda, vega, býla, garða, vatna, tjarna, kirkjugarða og annarra svæða. Þeir hafa þvegið glugga og gólf og málað hús. Þeir hafa gefið blóð, tekið saman hjálparpakka og matvæli til að dreifa til hinna heimilislausu og nauðstöddu og tekið til hádegisverði og séð um að skemmta og hjálpa eldri borgurum. Þeir hafa hannað og smíðað tæki fyrir barnaleikvelli og hjálpað til við að hreinsa og reisa úr rústum. Þegar þeir höfðu unnið að viðhaldsverkefnum á bæjarbýli, sagði einn stjórnandi góðgerðarbýlsins, sem þjónaði fullorðnum, unglingum og börnum með sérþarfir: "Sjálfboðaliðar ykkar vinna tveggja mánaða verk á einum degi."
Frerich Görts, tengiliður Sameinuðu þjóðanna fyrir Kirkju Jesú Krists hinna Síðari daga heilögu á Evrópusvæðinu, sagði: "Þótt margir kirkjumeðlimir séu þegar afar önnum kafnir við sjálfboðaliðastarf sitt í sjálfri kirkjunni, til að viðhalda þrótti hennar, erum við afar meðvitaðir um að samfélagsþáttaka er ekki aðeins ánægjulegt hugðarefni, heldur er hún að verða afar mikilvæg til lífheldni samfélags, og því verða félagsskyldur okkar að ná út fyrir kirkjuna."
Verkefnaáætlun Hjálpandi handa mormóna er starfandi í rómönsku Ameríku, Afríku, Asíu, Evrópu, á Kyrrahafseyjum og í Ameríku.