Fréttir - 26.04.2010 |
Árið 1970 stofnaði Janie Thompson BYU Ambassadors, söng- og danshóp fjörugra háskólanema, sem voru fulltrúar Bandaríkjanna á sýningunni Expo '70, sem haldin var í Osaka, Japan. Hópurinn heitir nú BYU Young Ambassadors og mun á þessu ári halda upp á að hafa í 40 ára sungið og dansað til að gleðja hjörtu margar víða um heim. Hópurinn hefur sýnt fyrir kóngafólk, verið hylltur í Indlandi af Indira Ghandi, heilsað upp á móður Teressu og heimsótt yfir 66 lönd víða um heim.
Á hverju vori fara nemar þessir, sem hafa fjölbreyttan bakgrunn, með vel þjálfuð sýningaratriði sín vítt og breitt um heiminn, bæði innan og utan lands. Þeir sýna ekki aðeins áhorfendum afar fjörug atriði sín uppi á sviði, heldur sýna þeir líka á sjúkrahúsum, hjúkrunarheimilum, munaðarleysingjaheimilum og í skólum. Sýningar fulltrúa þessara hafa stuðlað að dásamlegum viðurkenningum og velvilja - sem eru lykilþættir er hópurinn leggur mikla áherslu á.
Ferðalög, sýningar og þátttaka í útrásarverkefnum er nemunum góð lífsreynsla, einkum þegar þeir dvelja á heimilum fjölskyldna á ferðum sínum. Náin vinátta skapast á milli nemanna og gestgjafa þeirra, er þeir laga sig þegar í stað að lífsstíl, tungumáli og daglegum athöfnum fólksins.
Bróðir Randy Boothe, fyrrverandi BYU Young Ambassador og núverandi liststjórnandi, greindi frá reynslu þeirra þessum orðum: "Þau hafa í raun helgað sig því að stuðla að vináttu með tónlist og dansi."
Við getum glaðst með þessum ungu fulltrúum með því að minnast heimsóknar þeirra vítt og breitt um Evrópu og þakka fyrir velvilja þeirra og sýningar í 40 ár. "Vinátta" er sannlega boðskapur ykkar.