Kirche Jesu Christi der Heiligen der Letzten Tage
Fréttir - 24.01.2008

 

Gott hlýst af slæmu

Örfáir veggir voru það eina sem eftir stóð er stikubyggingin í Tampere brann til kaldra kola.

Stikumiðstöðin í Tampere, Finnlandi, eyðilagðist í eldi laugardaginn 5. janúar, af völdum brennuvarga að því að talið er. Stikumiðstöðin hýsti tvær deildir í Tampere og er önnur af tveimur stikumiðstöðvum í Finnlandi.
 
Alls tóku 70 slökkviliðsmenn 17 slökkvistöðva þátt í því að slökkva eldinn, allt frá morgni fram á kvöld.

Lögreglan í Tampere rannsakar nú hvort eldurinn tengist öðrum nýlegum eldsvoðum. Markku Partanen, talsmaður stikunnar, lýsti hryggð sinni yfir að bygging sem reist hefði verið í sjálfboðavinnu kirkjuþegna hefði eyðilagst í eldsvoða. Hann sagðist ekki trúa að um óhæfuverk gegn kirkjunni væri að ræða. Hann teldi fremur að um handahófskennt skemmdarverk væri að ræða.

Ville-Matti Karumo minnist þess frá ungdómsárum sínum, er hann átti heima í Tampere, nærri samkomuhúsinu, að sumir piltanna þar voru kallaðir til að taka að sér verkefni við bygginguna. „Ég var í skóla á þeim tíma, árin 1965 til 1967. Ég fór flesta daga vikunnar í bygginguna og skilaði yfir 1.000 vinnutímum. Ég minnist líka ungs trúboða frá Danmörku sem var hjá okkur í um tveggja ára skeið sem byggingar-trúboði.“

Bróðir Karumo, sem er yfirmaður almannatengsla í Finnlandi, sagði kirkjuþegna vera miður sín yfir tjóninu. Hann sagði þó ýmislegt gott hafa hlotist af þessum hörmungum. Fjölmiðlar hafa fjallað gríðarlega um eldsvoðann, sem var aðalfrétt dagblaða og sjónvarpsstöðva þann dag. Margir í samfélaginu hafa sýnt okkur samúð og leiðtogar annarra trúarsafnaða hafa boðið okkur afnot af sínu húsnæði til guðsþjónustu.

Fréttamenn dagblaða hafa tekið viðtöl við kirkjuþegna og sjónvarpsstöðvar hyggjast sýna frá guðsþjónustu á sunnudegi. Heimsóknir á heimavefsíðu kirkjunnar þar í landi hefur aukist úr um 700 á dag upp í um 8.700 daginn sem eldsvoðinn átti sér stað og var um 3.500 daginn eftir.

„Svo jafnvel þótt þetta sé hörmulegt, er einnig um gríðarlegt tækifæri að ræða fyrir kirkjuna,“ sagði bróðir Karumo.