Fréttir - 15.12.2008 |

Öldungur Robert C. Oaks af hinum Sjötíu (fyrir miðju) er hér með Jeff Swinton, forseta London suður trúboðsins og Michael R. Fagg, forseta London musterisins.
Hinn gamli rómverski vegur, sem liggur frá strönd suður Englands til árinnar Thames, hefur í 50 ár legið við hlið London musterisins og 32 ekru garðsins sem musterið stendur á. Í dag er þar einnig hin „nýja“ gestamiðstöð London musteris sem prýðir garðinn og býður þeim sem eiga leið hjá, kirkjuþegnum, ferðamönnum og samfélaginu að heimsækja „útbreiðslumiðstöð Guðs orðs.“
„Gestamiðstöð er staður til þess að kenna boðskap friðþægingarinnar, boðskap sáluhjálparáætlunarinnar og boðskap endurreisnar fyllingu fagnaðarerindis Jesú Krists,“ sagði Öldungur Robert C. Oaks af hinum Sjötíu og forseti Evrópu svæðisins er hann undirbjó sig fyrir að helga gestamiðstöðina, sem er nú búið að gera upp.
Öldungur John Longden, sem var aðstoðarmaður Tólfpostulasveitarinnar, hafði áður helgað gestamiðstöðina árið 1969 þegar hann var að heimsækja trúboðin á Bretlandseyjum. Byggingin hefur ekki verið notuð sem gestamiðstöð í mörg ár.
Öldungur Oaks sagði að í gestamiðstöðinni eru kirkjuþegnar og gestir „kynntir fyrir musterinu sem griðarstað gegn áhyggjum heimsins.“ Þessi sama tilfinning mun ríkja í gestamiðstöðinni vegna hins nýja Kristslíkneskis sem staðsett er rétt fyrir innan innganginn og horfir yfir musterislóðina út um glugga sem ná frá gólfi og upp í loft, sagði Öldungur Oaks.
Til viðbótar við Kristslíkneskið þá eru eftirfarandi fimm gagnvirkar sýningar sem undirstrika endurreisnina: „Musteri heimsins“, „Smíði London musterisins“, „Skilaboð til fjölskyldunnar“, „Kennsla nútíma spámanna sem sérstök vitni Jesú Krists“ og „Mormónsbók.“ Sýningarsalur með 48 sætum sýnir kvikmyndina „Joseph Smith: spámaður endurreisnarinnar“ sem og aðrar kirkjukvikmyndir.
Margir munu stoppa með spurningar er varða musterið og hvað gerist innan veggja þess. Öldungur Oaks sagði „Það er einungis í gegnum endurreistan og opinberaðan sannleik sem við getum skilið að það er vegur sem liggur aftur til nærveru himnesks föðurs. Þessi vegur liggur alltaf í gegnum musterið. Það hljómar útilokandi en það er ekki. Fagnaðarerindi Jesú Krists innifelur allt á fullkominn hátt: heimspeki, kenningar og sannleika. Þetta er dásamleg áætlun. Það eru gerðar ráðstafanir í áætluninni fyrir hvern son og hverja dóttur Guðs sem nokkurn tímann hefur gengið á jörðinni.“
Gestamiðstöðin er staðsett rétt hjá musterinu.
Öldungur Oaks talaði til bresku kirkjuþegnana og fór yfir það mikilvæga hlutverk sem England lék með frelsisskrá Englands við að koma á fót frjálsum ríkisstjórnum um heim allan. Hvar sem frelsi er mikilsmetið þá er hægt að „rekja rætur þess aftur til bresks pólitískrar hugsunar.“
Jeffrey C. Swinton forseti England suður London trúboðsins flutti línur úr ljóðinu „Jerúsalem“ eftir William Blake, sem er sungið um allt Bretland eins og það væri þjóðsöngurinn. Versin fjalla um þjóðsöguna sem lýsir því þegar frændi frelsarans kom með Jesú til Englands í einni af sinni löngu sjóferðum.
„Orðin segja feikn til okkar sem vita að þau voru spámannleg: 'Gengu þessir fornu fætur á grænu fjöll Englands? ' og 'Var Jerúsalem byggð hér á græna og góða Englandi? ' Fólk hefur velt fyrir sér hvað Blake átti við,“ sagði Swinton forseti. „Við vitum að postular komu árið 1837 og byrjuðu að blessa þetta græna og góða land og sú viðurvist hefur verið hér æ síðan.
Kristslíkneskið, sem hér stendur í dag, er táknrænt fyrir þennan atburð.“
Musterisforseti London musterisins, Michael R. Fagg, talaði um afmælishátíð musterisins og betrumbætur sem hafa verið gerðar á musterislóðinni, garðinum og áætlun um að setja styttu af englinum Moróní á turnspíra musterisins í desember. Hann fjallaði einnig um eigin trúskipti sem áttu sér stað fyrir 46 árum þegar tveir ungir trúboðar kenndu honum og konu hans og opnuðu þar með huga þeirra og hjörtu fyrir fagnaðarerindinu.
„Ég verð ætíð þakklátur, sem faðir og foreldri, fyrir hinar miklu blessanir fagnaðarerindis Jesú Krists,“ sagði hann. „Á hverju kvöldi er ég yfirgef musterið, þá horfi ég á Kristslíkneskið í gegnum gluggann á leiðinni heim og ég veit að frelsarinn vakir yfir mér, fjölskyldu minni og ykkur öllum.“
Undirbúningur á gestamiðstöðinni var ekki áfallalaus. Sérstaklega málaður bakgrunnur fyrir Kristslíkneskið skemmdist í uppsetningu og starfsfólk í trúboðsdeildinni þurfti að finna einhvern til að mála veggmynd með mjög stuttum fyrirvara. Það sem gerðist síðan hefur verið kallað „sagan um veggmálarann og kraftaverkið.“ Dean Rush, veggmálarinn, segir: „Þau sögðust hafa fundið nafn mitt í símaskránni en nafn mitt hefur ekki verið þar í sjö ár.“
Systur Gloria Oaks, Heidi Swinton og Gwyneth Fagg ásamt Allan McLuckie og David Irwin, ráðgjöfum í England suður trúboðinu, tóku einnig þátt í athöfninni.