Fréttir - 27.01.2008 |
Fyrrverandi trúboðar, sem þjónuðu í Saarlandríki í Þýskalandi, hafa fengið boðsbréf.
Þeim trúboðum sem þjónað hafa í þessu þýska ríki er boðið ásamt mökum, að koma saman til heiðursmóttöku, með framámönnum viðskipta, háskóla og stjórnmála í Saarland, í hótel Little America í Salt Lake City, þriðjudaginn 31. janúar, frá kl. 6 til 8 síðdegis, vegna dyggrar þjónustu þeirra. Economic Development Corp. er styrktaraðili þessa viðburðar og býður upp á hlaðborð.
Meðal væntanlegra gesta eru öldungur Dieter F. Uchtdorf, í Tólfpostulasveitinni, innfæddur þjóðverji og fyrrverandi flugmaður þýska flugfélagsins Lufthansa; og öldungur Marlin K. Jensen, af hinum Sjötíu, sem þjónaði sem trúboði í Saarland.
Saarland er staðsett við landamæri Frakklands og Lúxemborgar og er eitt af sextán ríkjum Þýskalands. Það hefur skipt um eigendur í gegnum tíðina og var jafnvel sjálfstæð þjóð um tíma eftir lok Síðari heimsstyrjaldarinnar.
Ríkisstjóri Utah Michael O. Leavitt og Hans Peter Georgi, efnahagsráðherra Saarland, undirrituðu samkomulag árið 2002 um samstarf í efnahagsmálum.
Það leiddi til nemendaskipta milli Utah-háskóla og Saarbrucken-háskóla, tæknikynninga, fjölda viðskiptanefnda í báðum ríkjum og margs konar þátttöku í iðnaðarsamtökum, sagði Marlon R. Berrett, bandarískur fulltrúi Economic Promotion Corporation í Saarland og fyrrverandi þýskumælandi trúboði.
Meðan á heimsókn ráðherrans Georgis stóð í Utah hitti sendinefnd hans Æðsta forsætisráð kirkjunnar og fór í skoðunarferð um húsakynni velferðar- og hjálparstarfs kirkjunnar, en góð vinátta myndaðist þar á milli á umliðnum árum.