Kirche Jesu Christi der Heiligen der Letzten Tage
Fréttir - 21.11.2008

 

Að teljast með

Í stjórnklefa æfingarflugvélar Utah Valley háskólans með leiðbeinandanum Ryan Lefler. Uchtdorf forseti stýrir hér í fyrsta skiptið á 12 árum flugvél.

Dieter F. Uchtdorf forseti, annar ráðgjafi í Æðsta forsætisráðinu, hvatti nemendur í ræðu sinni, á hugvekju þann 28. október í Utah Valley háskólanum (UVU), að vera hlekkir og brýr sem þjóna löndum, siðkerfum og hefðum, „sér í lagi þegar þið komið með skilning ykkar á opinberuðum sannleika inn í veraldlegan heim atvinnugreina ykkar.“

Uchtdorf undirstrikaði mismuninn á þeim heimi sem hann ólst upp í í Evrópu og þeim heimi sem nemendur í UVU búa í.  Hann sagði að stjórnkerfið eftir síðari heimstyrjöldina hafi verið táknrænt fyrir eitt orð – „skiptingu“ – og einu nafni og staðsetningu – „Berlínarmúrinn“.  Hins vegar er nútíma alheims samfélag samanofið og táknrænt fyrir „samþættingu“ og nafnið og staðurinn í dag er „Alnetið.“

Hnattræn væðing getur hjálpað við að hlúa að háleitum markmiðum – betri lífsgæðum, minni fátækt í heiminum, meiri virðingu fyrir fjölbreytni og menningu ásamt friði fyrir allt mannkyn – en hreinskilni og traustið í dag getur einnig verið eins mikill dragbítur eins og það er dyggð, sagði hann.  

„Hnattræn væðing, með öllum sínum dyggðum, virðist hafa einn mikilvægan galla: Okkur finnst við öll vera tengd en enginn ber ábyrgð,“ sagði Uchtdorf forseti.  Hann bætir við „Leyfið mér að tala hreint út, í dag er dagurinn fyrir okkar bestu vonir, ekki okkar versta ótta.  Ákvarðanir okkar ættu ekki að stjórnast af ótta okkar.“

Hann kallaði eftir ákvörðunartöku með áhættu en ekki fljótfærni og sagði að í dag væri mikil þörf fyrir dyggðir og himneskar grundvallarreglur, þar á meðal valfrelsi sem leyfir einstaklingum að velja sjálfir og vera ábyrga fyrir gjörðum sínum.

„Getan til þess að þekkja rétt frá röngu er auðvitað byggð á sannleikanum, að það sé eitthvað til sem heitir rétt og rangt, alheimsstaðall siðfræðinnar sem gildir fyrir alla alls staðar,“ sagði Uchtdorf forseti.  „Ein af ástæðum hnignunar siðferðis í dag er sú að heimurinn hefur skapað nýja staðla fyrir siðferðislega hegðun sem er í stöðugri breytingu og óáreiðanlegur, oft kallaður 'aðstæðu siðferði' (e. situational ethics).“
 
„Nú metur einstaklingurinn 'gott' og 'illt' mismunandi eftir aðstæðum.  Sumir halda, ranglega, að það sé ekkert himneskt lögmál og því sé engin synd“ (sjá 2. Nefí 2:13).

Hann bæti við: „Heimurinn þarf að komast aftur á byrjunarreit gagnvart himineskri dyggð, sem kennd hefur verið frá tímum fornra spámanna, svo hann geti tekið sönsum.  Hið nýlega hrun fjármálamarkaða hefur fengið marga til þess að endurhugsa siðferði viðskiptalífsins.“

„Við lítum öll á hvort annað sem systkini án tillits til þess lands sem við köllum heimili okkar.  Við tilheyrum því sem hægt er að líta á sem frábærasta samfélag vina á gjörvallri jörðunni,“ sagði hann.

„Siðferðislegri hnignun er hraðað þegar einstaklingar, og að lokum samfélög, missa áhugann á himneskum dyggðum sem eitt sinn voru almennar og útbreiddar.  Nú er tíminn til þess að standa upp og láta að sér kveða en ekki víkja til hliðar eða beygja sig,“ sagði hann.  „Það er í raun skylda okkar að lyfta fólki upp úr hættulegum venjum og hjálpa þeim að takast á við áskorun framtíðarinnar.  Leiðtogar og fylgjendur eru ábyrgir gagnvart honum er gaf okkur líf.  Mikils er krafist af leiðtogum og fylgjendum í lýðræðislegu þjóðfélagi, siðferði einstaklinga og persónuleiki skipta svo miklu máli fyrir báða aðila.“

Uchtdorf forseti sagði að Jesús Kristur væri Guð allrar jarðarinnar og byði öllum þjóðum og fólki að koma til sín og að hann sýndi okkur ekki bara veginn heldur gerir leiðina mögulega með friðþægingu sinni.  „Sannarlega er frelsarinn vegurinn (sjá Jóhannes 14:6),“ sagði hann. „Hann er uppspretta allrar sannar visku.  Að tilbiðja hann, að fylgja honum, að leitast eftir svörum hjá honum við áríðandi spurningum lífsins er lausnin að öllum áskorum okkar tíma.  'Óttist ei að gjöra gott,' hefur frelsarinn sagt. 'Beinið öllum yðar hugsunum til mín' (Kenning og sáttmálar 6:33, 36).“