Kirche Jesu Christi der Heiligen der Letzten Tage
Fréttir - 05.08.2010

 

160 ár haldin hátíðleg

Meðlimir í Århus íklæddir auðkennifatnaði Hjálpandi handa í þeim tilgangi að hreinsa borgargötur, sem var hluti af hátíðarhöldum 160 ára minningarhátíðarinnar í Danmörku. Heilagir um alla Danmörku létu þjónustu í té til heiðurs minningarhátíðinni.

Meðlimir Nykobing-Falster greinarinnar þjónuðu með því að hreinsa nærliggjandi skógarsvæði.

Allan júnímánuð héldu meðlimir kirkjunnar í Danmörku uppá 160 ára minningarhátið með ýmsum uppákomum og verkefnum tengdum Hjálparhöndum mormóna, 160 kerta hátíðartertu og komu öldungs Erichs W. Kopischke, af hinum Sjötíu og forseta Evrópusvæðisins.

Ríflega 30.000 Danir hafa gengið í kirkjuna frá því að postulinn Erastus Snow kom til Kaupmannahafnar 14. júní 1850, í þeim tilgangi að hleypa af stokkunum Skandinavíska trúboðinu og vera þar í forsæti. Á fyrstu 100 árunum fluttu flestir hinna dönsku meðlima frá heimlandi sínu til Utah. Að lokinni Síðari heimstyrjöldinni, einkum á áratugunum 1950 og 1960, urðu flestir meðlimirnir áfram í Danmörku til að efla kirkjuna um landið allt.

Um þessar mundir eiga um 5000 kirkjumeðlimir heima í Danmörku.

"Saga hinna dönsku heilögu er bæði undraverð og stórkostleg," sagði söguritarinn Jesper Stenholm Paulsen, annar ráðgjafi í forsætisráði í Kaupmannahafnarstikunnar í Danmörku. "Ég vil þakka öllum meðlimum og trúboðum, fortíðar og nútíðar, sem lagt hafa sitt af mörkum til að leiða fram verk Drottins hér í Danmörku og fyrir allar fórnir þeirra, bæði smáar og stórar.

Þegar við hófum ferð okkar fyrir svo mörgum árum, voru trúboðar hraktir út úr borgum, ofsóttir og gerðir útlægir. Nú eru hér 22 deildir og greinar, tvær stikur og fagurt musteri meðal okkar. Við höfum farið um langan veg."

Í hátíðarhöldunum tóku meðlimir beggja dönsku stiknanna taka þátt í verkefnum Hjálparhanda mormóna, 12. og 19. júní, til að láta í ljós innilegt þakklæti fyrir góðar móttökur embættismanna heimasvæða og góð gagnkvæm samskipti.  

Verkefnin tengjast þjónustu við aldraða og fegrun vega, skóga, almenningsgarða og vatnasvæða í sjö dönskum borgum.

"Við leggjum til þessi verkefni til að sýna að við tilheyrum samfélagi sem oft hefur reynst okkur vel," sagði Finn Lykkegaard forseti Nykøbing-Falster greinarinnar í fréttagrein heimablaðs. Við viljum gefa eitthvað til baka, og það sem mestu skiptir, við höfum trú á þjónustu."

Samfélagsleiðtogar á þessum svæðum hrósuðu kirkjumeðlimum fyrir framlag þeirra til samfélagsins.

Við erum ánægð með að hafa kirkju mormóna í Gladsaxe, sem getur tekið höndum saman með samborgurum landsins," sagði Karin Søjberg Holst, borgarstjóri Gladsaxe. "Ég vil færa kirkju mormóna hamingjuóskir og hinum fjölmörgu meðlimum hennar á 160 ára minningarhátiðinni."

Paulsen forseti sagði einnig að þjónustuverkefnin beri vott um umhyggjusemi hinna Síðari daga heilögu fyrir samfélagi sínu.

Við tilheyrum dönsku samfélagi engu síður en allir aðrir, og líkt og flestir Danir, viljum við leggja okkar af mörkum við að efla hin ýmsu samfélög okkar," sagði hann.

Síðar, eða hinn nítjánda, héldu meðlimir veislu í kirkjubyggingunni í Søborg. Allir hinna 400 sem sóttu veisluna gáfu sápur, tannbursta, tannkrem og handklæði í þágu íbúa Haiti sem inngöngugjald. Auk afar stórrar köku og gamanleikrits, tróðu kór Kaupmannahafnarstikunnar og danskur danshópur mormóna upp. 

Á kvöldvöku hinn 20. júní sagði Kopischke forseti að kennsla Erastus Snow um fagnaðarerindið ætti enn við í dag. 

"Nú eru 22 deildir og greinar, tvær stikur og fagurt musteri meðal okkar. Við höfum farið um langan veg."