Þegnar Kirkju Jesú Krists hinna Síðari daga heilögu taka á ævi sinni að sér fjölda ábyrgðarverka og kallana í deildum og stikum og sem spanna yfir stærri landsvæði og heim allan. Nær öll embætti eru tímabundin og er meginreglan 3 til 9 ár. Hlutaðeigandi kirkjuleiðtogar sjá um að manna slíkar kallanir sjálfboðaliða. Þeir leysa einnig fólk frá störfum. Kirkjuþegnar lýsa yfir stuðningi við embættismenn kirkjunnar og heita þeim siðferðilegum og virkum stuðningi.
Sum ábyrgðarverk eru óaðskiljanlegur þáttur í lífi hvers virks Kirkjuþegns: Heimiliskennsla er það nefnt er prestdæmishafar heimasvæðis annast andlegar þarfir sérhvers í söfnuðinum. Konur starfa einnig eftir velferðaráætlun sem nefnist heimsóknarkennsla.
Kirkjan hefur það sérstaka viðfangsefni að breiða út fagnaðarerindi Jesú Krists. Piltar og stúlkur (um 53.000 árið 2006) starfa í þeim tilgangi af kappi, í yfir eitt hundrað löndum í um tvö ár, við að boða hin góðu tíðindi, fagnaðarerindið. Að auki er ákveðið trúboðshlutverk sem eldra fólki er falið, sem felur í sér læknisaðstoð, landbúnaðaruppbyggingu, félagsstarf, menntun, musterisþjónustu, ættfræðivinnslu o.s.frv. Allir trúboðar fjármagna starf sitt sjálfir með aðstoð fjölskyldu, vina og heimasafnaðar.