Kirche Jesu Christi der Heiligen der Letzten Tage



KIRKJULÍF

Grunneiningar kirkjunnar nefnast deildir og greinar. Sá sem er í forsvari kirkjusöfnuðar er nefndur biskup eða greinarforseti. Hann er einn af safnaðarmeðlimum og sinnir embættisverkum sínum í sjálfboðavinnu. Prestastétt er ekki launuð, hver og einn er leikmaður og öll embætti kirkjunnar byggjast á sjálfboðaliðavinnu.

Kirkjuþegnar koma saman á sunnudögum til að tilbiðja Guð; allir eru velkomnir að koma á samkomur. Á virkum dögum vikunnar – að mánudögum undanskildum – er reglubundið starf hinna ýmsu aldurshópa.

Karlmönnum og piltum er skipað í prestdæmissveitir eða hópa. Konur eru í Líknarfélagi (Sjá �ffnet einen internen Link im aktuellen FensterKonur í kirkjunni og Kvenfélag). Unglingar eru í Piltafélagi og Stúlknafélagi (Sjá Barna- og ungmennastarf.) Umfangsmikið starf er innt af hendi í þágu barna í Barnafélagi kirkjunnar. (Sjá Barna- og ungmennastarf.)

 

Félagsstarf sem er fjölskylduvænt byggir aðalega á íþróttum, hljómleikum, ferðalögum, leiklist, málþingi um kirkju, samkvæmisdönsum og dansleikjum, ungmennaráðstefnum og útilegum og geta gestir yfirleitt tekið þátt.

Kirkjuþegnar halda jól og páska hátíðleg, því í þeim endurspeglast mikilvægustu atburðir mannkynssögunnar, út frá andlegu sjónarhorni, sem er fæðing, dauði, þjáning og upprisa Jesú Krists. Þeir halda einnig hátíðlega þjóðhátíðardaga heimalands síns, sem og fæðingarafmælisdaga, brúpkaupsafmæli og aðra þýðingarmikla fjölskylduviðburði.

Sjá einnig