Kirkja Jesú Krists hinna Síðari daga heilögu kennir að maðurinn, sem andabarn Guðs, eigi uppruna sinni að rekja til himins og að hann komi inn í þennan heim er hann fæðist. Námsefni kirkjunnar og félagsstarf barna og ungmenna tekur mið af þeirri hugsjón.
Drengir og telpur hljóta saman fræðslu um kenningar kirkjunnar og hinar helgu ritningar, á þann hátt sem hæfir aldri þeirra. Markmiðið er að fá börnin til að skilja uppruna sinn, hvað ætlast er til af þeim í þessum heimi og hvert þau fara að þessu lífi loknu. Mikilvægt áhersluatriði kennslunnar miðar að því að þau virði og meti að sanni friðþægingu Jesú Krists og elski fjölskyldu sína og aðra. Þegar börnin verða átta ára kemur að hinni mikilvægu og helgu skírn. Sérstakt átak er þá gert til að hjálpa hverju barni til að komast til þekkingar á grunnkenningum kirkjunnar og að taka ákvörðun að eigin mati um láta skírast og taka á sig skyldur kirkjuaðildar.
Við 12 ára aldur eru piltar og stúlkur aðskilin og kennsla miðuð við ólík verkefni og ólíkar þarfir kynjanna. Piltar fá kennslu um þjónustu prestdæmisins og föðurhlutverkið og stúlkur eru m.a búnar undir móðurhlutverkið. Bæði kynin fá öfluga kennslu um mikilvægi fjölskyldunnar og fagmenntunar. Félagsstarf er sameiginlegt á sviði íþrótta, lista, tónlistar, dansa, þjónustuverkefna, ungmennaráðstefna o.s.frv. og myndar vináttubönd sem vara alla ævi.