Kirkjan á okkar tímum
Kirkja Jesú Krists hinna Síðari daga helögu er þegar orðin alheimskirkja. Eftirfarandi eru upplýsingar um kirkjuna:
- Í henni eru rúmlega 13 milljónir þegna og rúmlega helmingur þeirra er utan Bandaríkjanna.
- Máli hennar tala 53.400 trúboðar í 165 löndum.
- Hún hefur gefið út ríflega 100 milljónir eintaka af ritinu Mormónsbók - Annað vitni um Jesú Krist á 93 tungumálum.
- Hún starfrækir 124 musteri um heim allan og að auki eru 10 á byggingarstigi.
- Hún starfrækir samkomuhús um heim allan, en þar koma kirkjuþegnar og gestir saman á sunnudögum til að tilbiðja og læra.
- Í Evrópu eru nú yfir 1500 söfnuðir Kirkju Jesú Krists hinna Síðari daga heilögu.
Höfuðstöðvar í Salt Lake City
Höfuðstöðvar Kirkju Jesú Krists hinna Síðari daga heilögu eru í Salt Lake City, því fyrstu brautryðjendur kirkjunnar settust þar að, undir leiðsögn Brighams Young. Salt Lake City Bandaríkjanna eru nú mannlífsborg við rætur Klettafjallanna. Höfuðstöðvar kirkjunnar eru í miðbæ borgarinnar.
Fasteignir og landsvæði kirkjunnar þar eru:
- Musteristogið, sem er fallegt skipulagt svæði sem nær yfir um 14 hektara, en á því eru Salt Lake-musterið, Laufskálinn, Hátíðahöllin og tvær gestamiðstöðvar.
- Skrifstofubygging kirkjunnar er austan við Musteristorgið.
- Hin mikilfenglega ráðstefnuhöll, en í henni heldur kirkjan ráðstefnur fyrir heim allan. Hún er norðan við Musteristorgið.
Hvar búa kirkjuþegnar?
Þegnar kirkjunnar búa um heim allan. Í henni eru rúmlega 13 milljónir þegna og rúmlega helmingur þeirra býr utan Bandaríkjanna. Aðeins 14 prósent kirkjuþegna búa í Utah.
Þeir sem hafa ensku að móðurmáli eru um helmingur af kirkjuþegnum og þeir sem hafa spænsku að móðurmáli 3.226.000 og portúgölsku 780.000. Þeir sem hafa að móðurmáli önnur tungumál en ofangreind eru 1.331.000.
Kirkjuaðild
Fólk fær aðild að Kirkju Jesú Krists hinna Síðari daga heilögu með því að meðtaka skírn. Kirkjuþegnar eiga kost á að læra, þroskast og þjóna öðrum.
- Kirkjuþegnar eru leikmenn. Þeir eru „kallaðir“ til að þjóna í ýmsum stöðum.
- Á þann hátt lærist þeim að þjóna öðrum.
- Slík þjónusta gerir það að verkum að kirkjuþegnar njóta gagnkvæmrar þjónustu og leggja sitt af mörkum allri kirkjunni til vegsemdar (1. Korintubréfið 12).
Spámaður í Mormónsbók að nafni Benjamín sagði: „Þegar þér eruð í þjónustu meðbræðra yðar, eruð þér aðeins í þjónustu Guðs yðar.“ (Mósía 2:17). Aðild að kirkjunni gefur fólki kost á að þjóna öðrum, sem verður til að þroska hæfileika og anda.