Joseph Smith yngri fæddist árið 1805 í Sharon, Vermont. Hann var sonur hjónanna Smith eldri og Lucy Mack Smith. Hann átti tíu bræður og systur. Foreldrar hans kenndu honum að biðjast fyrir, lesa Biblíuna og að trúa á Guð.
Í fyrstu sýn sinni,er Joseph var 14 ára, sá hann Guð föðurinn og son hans Jesú Krist. Þegar Joseph var 17 ára, vitjuðu hans sendiboðar frá himni til að búa hann undir það hlutverk að endurreisa kirkju Jesú Krists á jörðu. Hann var spámaður líkt og aðrir spámenn á tímum Biblíunnar.
Á æskuárum Josephs Smith spruttu upp margir trúsöfnuðir nærri heimili hans, sem allir lögðu áherslu á að þeir kenndu sannleikann. Það olli honum heilabrotum. Hann hafði löngun til að komast að því í hvaða kirkju sannleikann væri að finna. Dag nokkurn las hann svohljóðandi ritningargrein í Biblíunni: „Ef einhvern yðar brestur visku, þá biðji hann Guð, sem gefur öllum örlátlega og átölulaust, og honum mun gefast.“ (Jakobsbréfið 1:5). Joseph gerði upp hug sinn og einsetti sér að taka þessari áskorun og biðja til Guðs.
Vorið 1820 hélt hann út í trjálund nokkurn nærri heimili sínu til að biðjast fyrir í þeirri viðleitni að komast að því í hvaða kirkju hann ætti að ganga. Hann hlaut bænheyrslu með þeim hætti að Guð faðirinn og sonur hans Jesús Kristur birtust honum. Joseph lýsti því á þennan hátt: „Þegar ljósið hvíldi á mér, sá ég tvær verur, svo bjartar og dýrðlegar, að ekki verður með orðum lýst, og stóðu þær fyrir ofan mig í loftinu. Önnur þeirra ávarpaði mig, nefndi mig með nafni og sagði, um leið og hún benti á hina: „Þetta er minn elskaði sonur. Hlýð þú á hann!“ Joseph var sagt að hann mætti ekki ganga í neina þeirra kirkna sem ættu tilveru á hans tíma.
Fyrsta sýn Josephs Smith markaði upphafði að endurreisn kirkju Jesú Krists á jörðu.
Greinargerð hans um þann atburð er máttugur vitnisburður um sýn hans og reynslu.