Kirche Jesu Christi der Heiligen der Letzten Tage

BYRJUNIN OG LEIÐTOGAR

Brigham Young

Í  júní árið 1844 voru Joseph Smith og bróðir hans myrtir í Charthage, Illinois. Yfirstjórn kirkjunnar var færð í hendur Brighams Young, sem á þeim tíma hafði þjónað lengst sem postuli í Kirkju Jesú Krists hinna Síðari daga heilögu.

Brigham Young varð ábyrgur fyrir áframhaldandi tilurð kirkjunnar. Eftirfarandi eru upplýsingar um Brigham Young:

  • Hann leiddi hóp brautryðjenda 1.600 km yfir óbyggðar sléttur og kom til Saltvatnsdalsins, Utah, árið 1847.
  • Síðar skipulagði hann landnám yfir 70.000 manns frá Bandaríkjunum og Evrópu og stofnaði 350 stöðvar, og eru sumar þeirra nú bæir í Utah, Idaho, Wyoming, Colorado, Nýju-Mexíkó, Arisóna, Nevada, Kaliforníu, Kanada og Mexíkó.
  • Hann leiddi kirkjuna í 33 ár.
  • Hann dó í Salt Lake City árið 1877, þá 76 ára að aldri.

Brautryðjendur

Hinir Síðari daga heilagir (eins og kirkjuþegnar eru nefndir) voru hraktir af múg frá heimilum sínum í Nauvoo, Illinois, árið 1846. Þeir fóru yfir Iowa og héldu til í Vetrarstöðvum í Nebraska, sem ekki eru allfjarri Omaha okkar tíma. Fyrsti brautryðjendahópurinn fór, undir forustu Brighams Young, frá Vetrarstöðvum vorið 1847 og kom til Saltvatnsdalsins 24. júlí 1847. Fólkið hafi lagt að baki um 1.600 km.

Á árunum 1847 til 1869:

  • Brautryðjendurnir notuðu yfirbyggða vagna, hesta og handvagna í langferð sína yfir slétturnar.
  • Mörg þúsund manns komu frá öðrum löndum, einkum Stóra-Bretlandi og Norðurlöndum.
  • Brautryðjendurnir fluttust til vesturhluta Bandaríkjanna til að hefja þar nýtt líf og tilbiðja Guð.
  • Ríflega 70.000 manns fóru yfir slétturnar til Salt Lake City (enn fleiri komu eftir lagningu járnbrautanna árið 1869).
  • Brautryðjendurnir dreifðust um stór landssvæði í vesturhluta Bandaríkjanna frá Salt Lake City.

Landnámið í Saltvatnsdalnum

Brautryðjendur Síðari daga heilagra komu í Saltvatnsdalinn í júlí árið 1847. Brigham Young leit yfir landsvæðið í vagni sínum og sagði: „Þetta er staðurinn.“

  • Brautryðjendurnir tóku strax að yrkja landið, plægja og planta korni og öðru.
  • Þeir byggðu hús, skóla og kirkjur.
  • Brigham Young ákvað staðsetningu musterisins í Salt Lake.
  • Salt Lake City hefur vaxið úr fámennu samfélagi landnámsmanna í ríflega 200.000 manna borg. Rúmlega milljón manns býr í nálægum samfélögum.

Aðrir leiðtogar

Brigham Young leiddi kirkjuna til Saltvatnsdalsins og stuðlaði að vexti hennar og útbreiðslu um vesturhluta Bandaríkjanna. Eftir dauða hans tók John Taylor, sem verið hafði lengst postuli, við sem þriðji forseti kirkjunnar. Þegar forseti kirjunnar deyr tekur sá við sem verið hefur lengst postuli. Eftirtaldir menn hafa verið forsetar kirkjunnar eftir daga Brighams Young:

  • John Taylor 1877-1887
  • Wilford Woodruff 1887-1898
  • Lorenzo Snow 1898-1901
  • Joseph F. Smith 1901-1918
  • Heber J. Grant 1918-1945
  • George Albert Smith 1945-1951
  • David O. McKay 1951-1970
  • Joseph Fielding Smith 1970-1972
  • Harold B. Lee 1972-1973
  • Spencer W. Kimball 1973-1985
  • Ezra Taft Benson 1985-1994
  • Howard W. Hunter 1994-1995
  • Gordon B. Hinckley 1995-

Hver forseti kirkjunnar velur sér sem ráðgjafa verðuga og hæfa menn. Saman mynda þessir menn Æðsta forsætisráð kirkjunnar. Þeir ásamt postulunum tólf leiða kirkjuna.

Framlag kvenna í kirkjunni

Allt frá stofnun kirkjunnar hafa karlar og konur starfað saman við að færa heiminum hið endurreista fagnaðarerindi Jesú Krists. Trúfastar konur hafa stýrt dráttarvögnum, ýtt á undan sér handvögnum, annast fjölskyldur sínar og lagt sitt af mörkum við að reisa borgir. Þær hafa þjónað í trúboði, boðað fagnaðarerindið um heim allan og reynt að lina þjáningar heima og að heiman.

Emma Smith, eiginkona spámannsins Joseph Smith, var einn fyrsti ritari Mormónsbókar. Hún hjálpaði Joesph á tíma ofsókna og lagði sitt af mörkum við að byggja upp kirkjuna. Emma Smith var fyrsti forseti Líknarfélagsins. Hún á þakkir skildar fyrir forystustarf sitt, er leiddi til þess að konur í kirkjunni settu á stofn Líknarfélagið, sem að öllum líkindum er nú fjölmennasta kvenfélag í heimi.

Eliza R. Snow varð forseti Líknarfélagsins á eftir Emmu Smith. Hún var afkastamikill rithöfundur og samdi hundruð sálma og orti texta við marga aðra, sem enn eru sungnir í kirkjunni. Hún átti einnig þátt í stofnun Stúlknafélagsins og Barnafélagsins.

Emma Smith og Eliza R. Snow eru aðeins tvær konur meðal þúsunda sem með starfsgleði, hugrekki og trú á Guð, lögðu mikið af mörkum við uppbyggingu kirkjunnar. Konur í kirkjunni á okkar tíma eru að starfa um allan heima við uppbyggingu kirkjunnar.