Kirche Jesu Christi der Heiligen der Letzten Tage

LEIÐTOGAR KIRKJUNNAR

Öldungur José Teixeira

2. Ráðgjafi Evrópusvæðisins

Öldungur José Teixeira var studdur sem meðlimur fyrstu sveitar hinnar Sjötíu í Kirkju Jesú Krists hinna Síðari daga heilögu þann 5. apríl 2008, 47 ára að aldri. Á þeim tíma hafði hann verið að þjóna sem trúboðsforseti í Brasilíu Sao Paulo suður trúboðinu.  Hann þjónaði sem meðlimur þriðju sveitar hinna Sjötíu á Vestur-Evrópu svæðinu frá 1997 til 2005.  Frá 1. ágúst 2009 hefur hann þjónað sem annar ráðgjafi í forsætisráði Evrópusvæðisins.

Öldungur Teixeira hlaut gráðu í bókhaldi og viðskiptum frá Jaime Cortesao bókhaldsstofnuninni í Portúgal árið 1978. Árið 1987 hlaut hann GAE gráðu í viðskiptafræði frá IAT Business skólanum í Portúgal. Áður en hann var kallaður sem trúboðsforseti var hann alþjóða fjármálafulltrúi fyrir Kirkju Jesú Krists hinna Síðari daga heilögu með ábyrgð fyrir Evrópu og Afríku. Í þessari stöðu stýrði hann fjármála vinnslumiðstöð fyrir Evrópu og Afríku í Solihull, Englandi og hafði eftirlit með fjármálafulltrúum í austur Evrópu, mið Evrópu, vestur Evrópu, suðaustur Afríku og vestur Afríku svæðunum.

Öldungur Teixeira hefur þjónað í fjölmörgum kirkjuköllunum, þar á meðal fasta trúboði í Portúgal Lissabon trúboðinu, öldungasveitarforseti, umdæmisforseti, ráðgjafi í stikuforsætisráði, hápresta leiðtogi, ráðgjafi í biskupsráði, í háráði, svæðishafi sjötíu og sem trúboðsforseti.

José Augusto Teixeira da Silva var fæddur í Vila Real, Portúgal 24. febrúar 1961. Hann kvongaðist Maria Filomena Lopes Teles Grilo í júní 1984. Þau eru foreldrar þriggja barna.