
Öldungur Gérald Jean Caussé, 44 ára, var kallaður sem aðalvaldhafi í apríl 2008 og er fyrsti Frakkinn sem verður aðalvaldhafi í sögu kirkjunnar.
Öldungur Caussé fæddist í Bordeaux, Frakklandi, 20. maí 1963. Hann hlaut meistaragráðu í viðskiptafræðum í ESSEC árið 1987. Áður en hann var kallaður sem aðalvaldhafi, starfaði hann sem stjórnarmaður og aðalframkvæmdastjóri í Pomona. Hann starfaði í matvælaiðnaði og tengdist nokkrum stórverslanakeðjum og fyrirtækjum í matvæladreifingu.
Öldungur Caussé var forseti Paris-stikunnar í Frakklandi frá 2001 til 2007. Hann var síðan kallaður í apríl 2007 sem svæðishafi Sjötíu á Mið-Evrópusvæðinu. Hinn 5. apríl 2008 var hann studdur sem meðlimur í fyrstu sveit hinna Sjötíu. Hann hóf þjónustu 1. ágúst 2009 sem fyrsti ráðgjafi í forsætisráði hins nýlega endurskipulagða Evrópusvæðis.
Öldungur Caussé giftist Valérie Babin í ágúst 1986. Þau eiga fimm börn.