Kirche Jesu Christi der Heiligen der Letzten Tage



NEYÐARAÐSTOÐ

Kirkja Jesú Krists getur brugðist skjótt við afleiðingum náttúruhamfara hvarvetna um heim, því hún hefur komið sér upp miklum matarbirgðum og hefur á að skipa reynslumiklu starfsfólki og góðu skipulagi. Hjálparstarf hennar nær til fjölda fólks um heim allan, án tillits til trúarbragða, kynþáttar eða þjóðernis.

Hjálparstarf hefur fram til þessa verið innt af hendi í 147 löndum og tugir milljóna dollara eru helgaðir starfi þessu á ári hverju.

Hér eru nokkur dæmi:

Neysluvatnsverkefni í Afríku

Á miðjum áttunda áratugnum olli mikil þurrkatíð vatnsskorti hjá milljónum manna í Afríku. Árið 1985 stóð kirkjan að föstu í þessum tilgangi 27. janúar og 24. nóvember og hvatti alla kirkjuþegna til að gefa rausnarlegar peningagjafir til hjálparstarfsins í Afríku. Verkefnið skilaði nærri 12 milljónum evra.

Fellibylurinn Andrew

Hinn 24. ágúst 1992 reið fellibylurinn „Andrew“ yfir Flórída í Bandaríkjunum. Skaði hans var slíkur að einsdæmi var í sögu Bandaríkjanna. Skaðinn var metinn á 30 milljarða dollara. Kirkjan kom í dreifingu fatnaði, vatni og neyðartækjum sem fylltu 10 stóra gáma. Kirkjuþegnar um allan suðurhluta Bandaríkjanna buðu sig fram til sjálfboðaliðastarfs við að endurbyggja þök á heimili fólks og til annarrar neyðaraðstoðar – í fyrstu vikunni eftir storminn buðu sig fram 1800 manns, í fyrstu viku septembermánaðar buðu sig fram 5100 manns og helgina á eftir bættust 500 fleiri í hópinn (þök voru endurbyggð á 3000 heimili og að auki á samkomuhús Gyðinga og þriggja kirkna annarra kristinna safnaða, auk annarra verka).

Rússland

Kirkjan hefur frá 1989 innt af höndum 110 hjálparstarfsverkefni í Rússlandi sem metin eru á ríflega 18 milljónir evra. Rússneska ríkisstjórnin hefur látið þakklæti í ljós og greint frá að engin samtök hafi lagt meira til líknarstarfs í Rússlandi en Kirkja Jesú Krists hinna Síðari daga heilögu.

Króatía, Bosnía og Hersegóvína

Frá árinu 1989 hafa þessi fyrrum lönd Júgóslavíu fengið hjálp sem svarar til sex milljóna evra er skiptist niður á 65 hjálparstarfsverkefni.

Kósovo

Hin ýmsu verkefni hafa verið unnin í þágu fóttamanna í Kósovo. Hinn 30. apríl 1999 var Rauða krossinum í Bonn gefnar 100 þúsund evrur, sem 36 þúsund þegnar Kirkju Jesú Krists hinna Síðari daga heilögu í Þýskalandi söfnuðu. Fjörutíu tonn af matvælum voru send með flugi til Makedóníu, sem líknarfélagið „Mercy Crops“ dreifði til hrjáðra fjölskyldna. Sjö gámar með 22 þúsund ábreiðum og 76 tonnum af fatnaði voru, með aðstoð „Mercy Crops,“ sendir með skipi til Makedóníu á tímabilinu 7. maí til 12. maí 1999. Frekari neyðaraðstoð stendur fyrir dyrum. Kirkjan hefur alls veitt hinum hrjáðu Kósovo-búum neyðaraðstoð að verðmæti 7.6 milljón dollara.

Þýskaland, Austurríki, Tékkland

Kirkjan ráðstafaði í gegnum hjálparstofnunina „HLT Aktion Nothilfe“ yfir 800 þúsund evrum sumarið 2002 í þágu fórnarlamba mestu flóða í Evrópu sem um getur í hundrað ár. Þeir peningar komu hinum hrjáðu fjölskyldum beint til góða. Bróðurpartur fjárins var notaður í Austur-Þýskalandi.