Menntunarsjóður kirkjunnar er til að aðstoða metnaðarfullt ungt fólk kirkjunnar, aðallega í þriðja heiminum, til að afla sér menntunar. Á þennan hátt er stuðlað að auknum möguleikum einstaklinga til að afla sé betri atvinnu og sjá fjölskyldu sinni farborða.
Menntunarsjóðurinn er fjármagnaður af kirkjuþegnum og velunnurum kirkjunnar. Virkir kirkjuþegnar sem hafa þörf á, bæði karlar og konur á aldinum 19 til 30 ára, geta fengið lán úr sjóðnum til frekari menntunar eða námsþjálfunar. Lántakendur endurgreiða síðan sjóðnum að námi loknu, svo aðrir fái einnig sömu tækifæri. Þið fáið frekari upplýsingar á ensku vefslóðinni www.lds.org.