Kirche Jesu Christi der Heiligen der Letzten Tage



FÖSTUFÓRNIR

Velferðarstarf Kirkju Jesú Krists hinna Síðari daga heilögu er fjármagnað með frjálsum framlögum kirkjuþegna, sem fasta einn dag í mánuði hverjum og gefa andvirði tveggja máltíða, sem þeir neita sér um, í þágu fátækra og þurfandi.

Velferðarstarfið er byggt á þeirri hugmynd að gera menn sjálfum sé nóga. Einstaklingar og fjölskyldur ættu ekki að vera háð stuðningi annarra. Starfið er yfirgripsmikið. Það hvetur kirkjuþegna til að leggja sig alla fram við að verða sjálfum sér nógir á hinum ýmsu sviðum, svo sem á sviði:

  1. Menntunar
  2. Atvinnu
  3. Fjármála
  4. Heimilishalds og matarbirgða
  5. Heilsufars
  6. Sálarlegs og andlegs styrks

Þrátt fyrir fyrirbyggjandi aðgerðir, kemur það endrum og eins fyrir að kirkjuþegnar komast í ógöngur. Kirkjan kennir að sá er slíkt hendir beri fyrst og fremst ábyrgð á að leysa úr eigin vanda. Þar á eftir er það á ábyrgð fjölskyldu eða ættingja. Kirkjan skerst aðeins í leikinn séu þessir möguleikar fullkannaðir, en eru ekki fyrir hendi. Velferðaraðstoð kirkjunnar er ávallt tímabundin – og tekur mið af því að hinn nauðþurfa einstaklingur verði að nýju sjálfbjarga.