Kirche Jesu Christi der Heiligen der Letzten Tage



BIRGÐARSTÖÐ BISKUPS

Eigi kirkjuþegn í erfiðleikum og er með öllu úrræðalaus, getur hann snúið sér til biskups síns (deildarleiðtoga). Hann er vel kunnugur öllum í deild sinni og þekkir að öllum líkindum aðstæður viðkomandi. Biskup getur því lagt mat á þarfir viðkomandi og getu hans til að sjá fyrir sér og veitt honum viðeigandi hjálp.

Í þeim heimshlutum þar sem kirkjan er vel grundvölluð og kirkjuþegnar eru tiltölulega margir, eru svo nefndar „birgðastöðvar biskups“ reknar – en þær eru líkar stórmörkuðum án greiðsluborða. Birgðastöðvum þessum var komið á fót nokkru eftir stofnun kirkjunnar 1830.

Á öðrum stöðum hefur biskup önnur úrræði til að veita viðeigandi aðstoð. Hann getur til að mynda keypt matvæli í matvöruverlunum. Biskup hefur fyrirmæli um að veita ekki hjálp með peningum. Þeim er hjálp þiggja er yfirleitt falið verkefni til úrrlausnar, sem hæfir hverjum og einum.

Þessi þáttur velferðarstarfs Kirkju Jesú Krists hinna síðari daga heilögu er fjármagnaður með frjálsum framlögum kirkjuþegna, sem fasta einn dag í mánuði hverjum og gefa andvirði tveggja máltíða, sem þeir neita sér um, í þágu fátækra og þurfandi.