Kirche Jesu Christi der Heiligen der Letzten Tage

SAMKOMUR

Mikilvægasta samkoman fyrir einstaklinga og fjölskyldur er hin vikulega sakrementissamkoma. Hún er höfð í kapellum á sunnudögum og sendur yfir í um 70 mínútur. Gestir eru hjartanlega velkomnir. Hver sakramentissamkoma er þjónusta við fjölskylduna og eru börn þar með talin.

Samkoman er byggð upp eins og eftirfarandi:

  • Sálmar: Allir safnaðarmeðlimir syngja sálma.
  • Bænir: Eru fluttar af kirkjuþegnum heimasvæðis.
  • Blessun og útdeiling sakramentis: Sakramentinu (sem er brauð og vatn) er útdeilt til safnaðarmeðlima.
  • Ræður: Yfirleitt eru tveir eða þrír ræðumenn á hverri samkomu, sem ræða um fagnaðarerindið með vísun í ritningar.

Peningasöfnun er aldrei viðhöfð á kirkjusamkomum.

Aðrar samkomur

Gestir eru einnig hjartanlega velkomnir á aðrar kirkjusamkomur sem eru fyrir eða eftir sakramentissamkomu.

  • Sunnudagaskóli er fyrir alla aldurshópa 12 ára og eldri.
  • Barnafélagið er með almennan kennslufund og aldursskipta bekki fyrir börn á aldrinum 3 til 11 ára. Þar er einnig gæsla fyrir börn á aldrinum 18 mánaða til 3 ára.
  • Stúlknafélagið er með aldursskipta bekki fyrir stúlkur á aldrinum 12 til 18 ára.
  • Konur, 18 ára og eldri. eru í Líknarfélaginu.
  • Prestdæmisfundir eru aldursskiptir fyrir pilta frá 12 ára aldri og fulltíða karlmenn.

Klæðnaður

Þeir sem sækja samkomur klæðast yfirleitt betri fatnaði. Karlar eru í jakkafötum með bindi og konur í kjól eða pilsi. Börn eru einnig í betri fatnaði.