Kirche Jesu Christi der Heiligen der Letzten Tage



Prestdæmi og aðildarfélög kirkjunnar

Kirkja Jesú Krists hinna Síðari daga heilögu skilgreinir „prestdæmið“ sem valdsumboð til að starfa í nafni Guðs. Sama valdsumboðið og var í frumkirkjunni sem Jesús Kristur stofnaði er fyrir hendi í kirkju Jesú Krists á okkar tíma. Kirkjunni er stjórnað með því.

Allir karlkyns þegnar kirkjunnar, sem hlotið hafa undirbúning og eru þess verðugir, hljóta prestdæmið (mögulegt við 12 ára aldur) í þeim tilgangi að leiða kirkjuna og þjóna öðrum. Karlmaður sem hefur prestdæmið getur til að mynda þjónað á eftirfarandi hátt:

  • Verið í forsvari kirkjueiningar.
  • Framkvæmt helgiathafnir, svo sem skírn, blessun sakramentis og staðfestingu.
  • Blessað sjúka.

Kirkju Jesú Krists hinna Síðari daga heilögu er stjórnað af Drottni Jesú Kristi fyrir tilstilli lifandi spámanns. Spámaðurinn nýtur aðstoðar tveggja ráðgjafa. Saman mynda þeir Æðsta forsætisráð kirkjunnar. Þessir þrír njóta aðstoðar Tólfpostulasveitarinnar og nokkurra sveita Hinna sjötíu. Á lægri stjórnstigum eru svo leiðtogar heimasvæða. Fjölskyldan er grunneining kirkjunnar. Öll verkáætlun kirkjunnar miðar að því að efla hjónabandið og fjölskylduna.

Stjórnun og skipulag

Æðsta forsætisráðið stjórnar um heim allan

Tólfpostulasveitin stjórnar um heim allan

Svæðisforsætisráð stjórnar tilskildu svæði

Hvert stikuforsætisráð stjórnar stikusvæði (= biskupasvæði)

Biskupsráð og greinarforsætisráð stjórna deild eða grein

Einstaklingar og fjölskylda