Kirche Jesu Christi der Heiligen der Letzten Tage



KONUR Í KIRKJUNNI

Konur eru ekki vígðar til prestdæmis í Kirkju Jesú Krists hinna Síðari daga heilögu, en þeim stendur til boða fjöldi tækifæra til að þjóna sem leiðtogar og kennarar í hinum ýmsu aðildarfélögum kirkjunnar, sem konur eru í forsvari fyrir á lægri og æðri stjórnstigum. Líknarfélagið (LR) er kvenfélag sem starfar um heim allan með fjórar milljónir aðildarfélaga. Núverandi forsætisráð er skipað Julie B. Beck, Silvia H. Allred og Barbara Thompson.

Stúlknafélagið þjónar stúlkum á aldrinum 12 til 18 ára. Núverandi aðalforseti félagsins er Elaine S. Dalton og ráðgjafar hennar eru Mary N. Cook og Ann M. Dibb.

Barnafélagið er fyrir börn 18 mánaða til 12 ára. Aðalforseti félagsins er Cheryl C. Lant og ráðgjafar hennar eru Margaret S. Lifferth og Vicki F. Matsumori.

Hvert þessara félaga hefur eftirfarandi skipurit: Höfuðstöðvar, stika og deild.