Kirkja Jesú Krists hinna Síðari daga heilögu viðurkennir eftirtalin helgirit:
Biblíuna, er Gamla og Nýja testamentið.
Mormónsbók, helg ritning sambærileg Biblíunni. Í henni eru rit spámanna frá fornum tímum. Einn þeirra, Lehí, var uppi í Jesúsalem um 600 f.Kr. Lehí leiddi fámennan hóp til meginlands Ameríku að boði Guðs. Þar varð fólkið að mikilli þjóð með spámönnum. Mormónsbók er safn rita um spámennina og leiðtoga þessa samfélags. Hún er nefnd eftir Mormón, sem var einn af síðustu spámönnum þessa tíma. Mikilvægasti boðskapur Mormónsbókar, ásamt því að vera sögurit um fólk og spámenn þess tíma, er um Jesú Krist, kenningar hans og veru hans meðal fólksins í Ameríku eftir upprisu hans. Mormónsbók ber ásamt Biblíunni vitni um að Jesús Kristur lifir og að hann er sonur Guðs og lausnari alls mannkyns.
Kenning og sáttmálar, er safn guðlegra opinberana og innblásinna útskýringa, sem Guð veitti spámönnum á nítjándu öld til að stofna og leiða kirkjuna á síðari dögum.
Hin dýrmæta perla, er safn opinberana, þýðinga og rita frá Joseph Smith.