Kirche Jesu Christi der Heiligen der Letzten Tage


BOÐORÐIN

Þegnar Kirkju Jesú Krists hinna Síðari daga heilögu trúa að boðorð séu guðleg leiðsögn að réttlátu líferni. Boðorð eru meðtekin með opinberun beint frá Guði eða frá spámönnum hans. Í hinum helgu ritningum eru frásagnir um slíkar opinberanir. Guð gefur börnum sínum boðorð vegna þess að hann elskar þau. Honum er ljóst að „aldrei hefur hamingjan falist í ranglæti“ (Mormónsbók, Alma 41:10) og að hlýðni við boðorð hans mun færa gleði og frið í þessu lífi og eilífa hamingju í komandi lífi.

Kirkjuþegnar trúa einnig að kenningar Krists í Nýja testamentinu og Mormónsbók sýni glögglega að hlýðni við boðorð sé sálarhreinsandi og að með hlýðni sé ekki aðeins átt við verk, heldur einnig hugsanir og ásetning.

Boðorðin tíu

 

Boðorð þessi, sem Guð opinberaði spámanninum Móse í Gamla testamentinu, eiga við um þegna kirkjunnar á okkar tíma. Boðorð þessi eru, líkt og fram kemur í 20. kapítula 2. Mósebókar í Biblíunni:

  • Þú skalt enga aðra guði hafa en mig.
  • Þú skalt ekki tilbiðja líkneskjur.
  • Þú skalt ekki leggja nafn Drottins Guðs þíns við hégóma.
  • Minnstu þess að halda hvíldardaginn heilagan.
  • Heiðra föður þinn og móður þína.
  • Þú skalt ekki morð fremja.
  • Þú skalt ekki drýgja hór.
  • Þú skalt ekki stela.
  • Þú skalt ekki ljúga.
  • Þú skalt ekki girnast eigur náunga þíns.

A Allir spámenn hafa allt frá Joseph Smith, og á það einnig við um Gordon B. Hinckley núverandi spámann og forseta kirkjunnar, kennt mikilvægi þess að einstaklingar, fjölskyldur og samfélög hlýði Boðorðunum tíu. Sum þessara boðorða, einkum það sem stundum er nefnt „gleymda sjöunda boðorðið,“ hafa fengið nýja áherslu á okkar tíma. Þegnum kirkjunnar er því kennt að lifa eftir skírlífislögmálinu, sem útilokar hvers kyns kynlífssamband fyrir hjónaband og undirstrikar fyllstu tryggð við eigin maka í hjónabandi.

Vísdómsorðið

 

Árið 1833 gaf Guð Joseph Smith heilbrigðislögmál í því skyni að hjálpa okkur að viðhalda heilbrigðum líkama og huga. Lögmál þetta er nefnt Vísdómsorðið. Guð hefur lagt áherslu á blessanir rétts mataræðis og góðrar líkamlegrar og andlegrar heilsu, og að auki hefur hann mælt gegn neyslu:

  • Tóbaks,
  • Áfengis,
  • Kaffis og tes
  • og ólögmætrar lyfjaneyslu.

Guð lofar öllum þeim sem lifa eftir Vísdómsorðinu miklum líkamlegum og andlegum blessunum. Vísindaheimur okkar tíma hefur staðfest margar þær reglna sem elskuríkur Guð gaf Joseph Smith fyrir nær tveimur öldum.

Tíundarreglan

 

Eða það að helga af frjálsum vilja einn tíunda hluta tekna sinna verki Guðs, er þekkt allt frá tímum Gamla testamentisins. Abraham greiddi tíund til Melkísedeks (1. Mósebók 14:17–20).

Drottinn fjármagnar kirkju sína með tíundarlögmálinu. Nú á tímum greiða allir trúfastir þegnar Kirkju Jesú Krists hinna Síðari daga heilögu einn tíunda hluta tekna sinna sem tíund til kirkjunnar. Tíundarsjóður er notaður til að:

  • Fjármagna byggingu mustera, kapella og annarra bygginga.
  • Fjármagna aðra sjóði kirkjunnar.
  • Fjármagna trúboðsstarfið.
  • Fjármagna kennslugögn sem notuð eru í námsbekkjum og aðildarfélögum kirkjunnar.
  • Fjármagna musterisverk, ættfræðiverk og marga aðra mikilvæga þætti kirkjustarfsins.
  • Fjármagna menntun.

Þegar Drottinn áminnti fólk sitt um lögmál þetta með spámanni sínum Malakí í Gamla testamentinu, gaf hann fyrirheit um að blessa þá sem fúlega greiða tíund af heiðarleika (Malakí 3:10).

Auk áðurnefndra boðorða eru fleiri boðorð í kirkjunni sem annaðhvort kveða á um ólögmæti eða lögmæti ákveðinnar breytni. Drottinn hefur þó lagt á það áherslu að boðorð hans kveði á um persónulega ábyrgð og frumkvæði:

" Því að sjá, ekki er rétt, að ég skipi fyrir í öllum efnum, því að sá sem er knúinn í öllu er hyskinn, en ekki hygginn þjónn, og hlýtur þess vegna engin laun.

Sannlega segi ég, menn ættu að starfa af kappi fyrir góðan málstað og gjöra margt af frjálsum vilja sínum og koma miklu réttlæti til leiðar –

Því að krafturinn býr í þeim og þeir hafa þannig sjálfræði. Og sem menn gjöra gott, svo skulu þeir í engu glata launum sínum. (Kenning og sáttmálar 58:26–28)