Kirche Jesu Christi der Heiligen der Letzten Tage



Hver er hugmynd ykkar um Guð?

Guð er fullkominn, alvitur og almáttugur.  Hann stjórnar alheiminum.  Hann er miskunnsamur, góður og réttlátur.  Hann er faðir okkar á himnum. Við vorum sköpuð í hans mynd (1. Mósebók 1:27).  Líkami hans er að formi til eins og okkar, en ódauðlegur, fullkominn og dýrðlegur, sem ekki verður lýst með orðum.

Hann þekkir og elskar okkur hvert og eitt, því við erum börn hans.  Hann hefur gert áætlun til að börn hans megi finna gleði í þessu lífi og snúa til hans að nýju að því loknu.

Hverjar eru megin trúarkenningar kirkjunnar?

Hugsanlega brennur á þér að vita meira um hverju þegnar Kirkju Jesú Krists hinna Síðari daga heilögu trúa í raun. Sumar mikilvægar kenningar kirkjunnar eru:

Guð er faðir okkar á himnum. Hann elskar okkur og vill að við snúum að nýju til hans. Jesús Kristur er sonur Guðs. Hann er frelsari okkar. Hann endurleysir okkur frá dauða með því að gera okkur keift að rísa upp. Hann endurleysir okkur frá synd, ef við iðrumst. Við getum fyrir friðþægingu Jesú Krists snúið að nýju til Guðs og lifað hjá honum – ef við höldum boðorð hans. Heilagur andi hjálpar okkur að þekkja sannleikann.

Frumreglur og helgiathafnir fagnaðarerindisins eru trú á Jesú Krist, iðrun, skírn og gjöf heilags anda. Kirkja Jesú Krists var endurreist á jörðu árið 1830 fyrir tilstuðlan spámannsins Josephs Smith. Prestdæmisvald frá Guði er nú innan kirkjunnar, líkt og það var í frumkirkjunni. Biblían og Mormónsbók eru orð Guðs. Guð opinberar nú spámönnum vilja sinn, líkt og hann gerði á fornum tíma. Líf okkar hefur helgan tilgang. Fjölskyldur geta verið saman að eilífu. Við upplifum gleði komumst nær Guði með því að þjóna samferðamönnum okkar.

Best væri að vinur eða einhver sem aðild á að kirkjunni svaraði spurningum þínum. Við getum einnig komið þér í samband við kirkjuþegn, sem hefði ánægju af að ræða við þig. Þú getur einnig komið á samkomu.

Hvert er inntak heilbrigðislögmáls kirkjunnar?

Líkami okkar er dýrmæt gjöf Guðs. Joseph Smith var opinberað heilbrigðislögmálið frá Guði árið 1833. Það er þekkt sem Vísdómsorðið og var gefið í þeim tilgangi að efla líkama og huga. Í Vísdómsorðinu leggur Guð ekki aðeins áherslu á heilbrigðisreglur líkama og hugar, heldur mælir hann einnig gegn neyslu eftirtalinna efna:

  • Tóbaks
  • Áfengis
  • Kaffis og tes
  • Ólöglegra lyfja

Guð lofar þeim er lifa eftir Vísdómsorðinu miklum líkamlegum og andlegum blessunum. Vísindi okkar tíma mæla einnig með sumum þeirra reglna sem Guð gaf Joseph Smith fyrir nærri tvö hundruð árum.

Hvernig get ég tileinkað mér iðrun?

Himneskur faðir vill að við séum hamingjusöm. Synd og ranglæti gerir fólk óhamingjusamt vegna þess að „aldrei hefur hamingjan falist í ranglæti“ (Mormónsbók, Alma 41:10).

Himneskur faðir hefur með friðþægingu Jesú Krists gert okkur kleift að iðrast og hljóta fyrirgefningu fyrir það ranga sem við höfum gert.

Við þurfum að gera eftirtalið til að iðrast:

  • Játa Guði syndir okkar
  • Syrgja einlæglega vegna synda okkar
  • Biðja Guð að fyrirgefa okkur
  • Gera allt í okkar valdi til að bæta fyrir afleiðingar synda okkar
  • Láta af synd og endurtaka hana ekki aftur

Þökk sé friðþægingu Krists að einlæg iðrun leiðir til fyrirgefningar og aukins friðar í þessu lífi. Iðrun býr okkur undir návist himnesks föður í komandi lífi.

Geta eiginmaður og eiginkona verið saman um alla tíð?

Fjölskyldan getur verið saman alla tíð.

Fjölskyldan getur verið saman – ekki aðeins í þessu lífi heldur um alla eilífð.

Fjölskyldan getur verið uppspretta mikillar gleði, en missir einhvers í fjölskyldunni getur á hinn bóginn valdið mikilli sorg.

Þótt ástvinur deyi, þarf það ekki að marka endi á sambandinu við hann. Drottinn opinberaði Joseph Smith: „Sama félagslyndi og ríkir meðal okkar hér mun ríkja meðal okkar þar [í eilífðinni], en þar við bætist eilíf dýrð“ (Kenning og sáttmálar 130:2).

Ef fjölskyldumeðlimir viðurkenna friðþægingu Jesú Krists og fylgja honum, geta þeir verið saman að eilífu, með því að taka á sig helgiathafnir sem framkvæmdar eru í musterum Guðs.

Hjónabandið

Þegar eiginmaður og eiginkona giftast í musterinu, getur fjölskylda þeirra verið saman alla tíð. Allir Síðari daga heilagir hafa það að markmiði. Þó er það ekki alltaf mögulegt. Annað hjónanna gæti hugsanlega ekki verið í kirkjunni eða ekki undir það búið að fara í musterið. Sumum gefst ekki tækifæri til að stofna til hjónabands.

Kirkjuþegnum sem hafa skilið eða eru einhleypir eða hafa gift sig utan musterisins er ekkert annað til fyrirstöðu. Þeir geta tekið þátt í helgiathöfnum fagnaðarerindisins og fengið tækifæri til að þjóna í kirkjunni.

Vitundin um að fjölskyldan geti verið saman alla tíð getur eflt hana til muna – ekki aðeins þá sem þegar hafa verið innsiglaðir í helgiathöfnum musterisins, heldur einnig þá sem bera von til þess í framtíðinni.

Musterið

Musterið er hús Drottins og helgasti staður jarðar.

Eitt sinn bauð Drottinn Salómon að reisa musteri (1. Kroníkubók 28:1). Eftir að Jesús Kristur hafði endurreist kirkju sína með Joseph Smith, bauð hann enn á ný að musteri skyldu reist.

Kirkjuþegnar taka þátt í helgiathöfnum í musterinu, sem eru til að sameina fjölskyldur alla tíð og gera þeim kleift að snúa til Guðs.

Hvað gera kirkjuþegnar í musterinu?

  • Þeir læra um eilífan sannleika
  • Þeir taka á móti helgiathöfnum, t.d. þeirri er innsiglar eiginmann og eiginkonu og börn og foreldra um alla eilífð. (Malakí 4:5)
  • Þeir framkvæma helgiathafnir í þágu annarra, t.d. skírn fyrir þá sem dáið hafa án þekkingar á fagnaðarerindinu. (1. Pétursbréfið 4:6; 1. Korintubréfið 15:29).

Trúið þið að fjölskyldur verði saman á himnum?

Ein af þeim kenningum sem auðkennir Kirkju Jesú Krists hinna Síðari daga heilögu er sú að hjónaband karls og konu geti varað alla tíð. Hjónaband sem stofnað er til í musteri kirkjunnar lýkur ekki við dauðann. Samband hjóna og barna er „bundið“ með valdsumboði prestdæmisins (Matteus 16:19) á þann hátt að það verður varanlegt um alla eilífð, ef hjónin lifa staðfastlega eftir kenningum Jesú Krists.

Hinn lifandi spámaður Guðs og postularnir tólf undirstrikuðu mikilvægi hjónabandsins og fjölskyldunnar með því að gefa árið 1995 út yfirlýsingu sem ber nafnið: Opens internal link in current window„Fjölskyldan: yfirlýsing til heimsins“.  Þér er velkomið að lesa hana.