Kirche Jesu Christi der Heiligen der Letzten Tage



Hvers vegna er svo rík áhersla lögð á fjölskylduna í kirkjunni?

Gordon B. Hinckley, forseti Kirkju Jesú Krists hinna Síðari daga heilögu, hefur sagt:

„Þjóð fær ekki risið hærra en styrkur fjölskyldna hennar leyfir.  Sé ætlunin að endurbæta þjóð, verður að byrja á fjölskyldunum, svo foreldrar kenni börnum sínum jákvæðar og afdráttarlausar lífsreglur er stuðla að gagnsemi þeirra í þjóðfélaginu. En einmitt það hefur mistekist í Ameríku.  Við reynum eftir fremsta megni að stuðla að samhug í fjölskyldum.  Brýnasta verkefni foreldra í þessum heimi er að vanda til uppeldis barna sinna, því ekkert mun veita þeim meiri ánægju, er fram líða stundir, en réttlát og heiðarleg börn er leggja sitt af mörkum til þess þjóðfélag sem þau tilheyra.“

Hvert er umræðuefni trúboða og hvernig fjármagna þeir trúboð sitt?

Trúboðar Kirkju Jesú Krists hinna Síðari daga heilögu eru stöðugt að boða kenningar hins endurreista fagnaðarerindis Jesú Krists.  Yfir 50 þúsund trúboðar eru í því sjálfboðastarfi um heim allan að miðla fagnaðarerindinu.  Flestir trúbðanna eru einhleypir, ungir menn og ungar konur, sem þjóna alla daga í 18 til 24 mánuði og bera sjálfir af því kostnað.

Þeir færa öllum boðskap um Jesú Krist og friðþægingu hans í þágu alls mannkyns. Þeir ræða um hina stórkostlegu sáluhjálparáætlun himnesks föður, sem gefur öllum kost á að dvelja með honum að nýju.