Eru gestir velkomnir á samkomur kirkjunnar?
Hvernig fara kirkjusamkomur fram?
Hvernig get ég lært meira um kirkjuna?
Árið 1838 fékk Joseph Smith opinberun um að nafn kirkjunnar ætti að vera: „Kirkja Jesú Krists hinna Síðari daga heilögu“ (Kenning og sáttmálar 115:4).
Kirkjan hefur frá þeirri stundu verið auðkennd þessu nafni. Gordon B. Hinckley, núverandi forseti Kirkju Jesú Krists hinna Síðari daga heilögu, lagði ríka áherslu á hið rétta nafn kirkjunnar með þessum orðum:
„Við trúum á Jesú Krist sem son Guðs. Opinbert nafn kirkjunnar er: ‘Kirkja Jesú Krists hinna Síðari daga heilögu.’ Jesús Kristur er þungamiðja tilbeiðslu okkar.
Kirkjan ber nafn Jesú Krists, sonar Guðs, lausnara heimsins. Kirkjan er opinberlega nefnd hans nafni.
Hvað nafnbótina ‘hinna Síðari daga heilögu’ varðar, þá tengist hún frumkirkjunni, því þegnar hennar voru nefndir hinir heilögu. Þeir voru hinir heilögu þess tíma. Við erum hinir heilögu á síðari dögum. Flóknara er það ekki.
Fólk kallar okkur oft ‘Mormóna.’ Það er viðurnefni sem fólk hefur gefið okkur því við trúum að Mormónsbók sé orð Guðs, að hún og Biblían styðji hvor aðra og að hún sé annað vitni um Jesú Krist.“
Já. Þér er velkomið að koma á samkomur hvenær sem þú óskar.
Þú getur á þessari vefsíðu tengst skrá yfir staðsetningu samkomuhúsa okkar eða flett upp í símaskránni undir nafninu „Kirkja Jesú Krists hinna Síðari daga heilögu.“ Yfirleitt er þar heimilisfang samkomuhúss, en stundum nafn heimaleiðtoga sem nefndur er biskup eða greinarforseti. Hann mun með ánægju hjálpa ykkur.
Samkomutími er misjafn eftir stöðum, en þó alltaf á sunnudögum.
Joseph Smith yngri fæddist árið 1805 í Windsor-sýslu, Vermont, Bandaríkjunum. Hann var sonur Joseph Smith eldri og Lucy Mack Smith. Hann átti tíu bræður og systur. Foreldrar hans kenndu honum að biðjast fyrir, lesa Biblíuna og trúa á Guð.
Hann drógst inn í trúarvakningu á hans tíma og leitaði hinnar sönnu kirkju. Hann hlaut bænheyrslu og upplifði það sem nefnt hefur verið Fyrsta sýnin. Þegar Joseph var 14 ára sá hann Guð föðurinn og son hans Jesú Krist.
Þegar Joseph var 17 ára vitjaði hans sendiboði frá himni til að búa hann undir það hlutverk sitt að endurreisa kirkju Jesú Krists á jörðu. Hann var spámaður líkt og aðrir spámenn á tímum Biblíunnar.
Allir gestir eru hjartanlega velkomnir. Sjá nánar um staðsetningu og tíma samkoma með því að
smella hér.
Mikilvægasta samkoman fyrir einstaklinga og fjölskyldur er sakramentissamkoma. Hún er haldin í samkomuhúsum á sunnudögum og stendur yfir í um 70 mínútur. Gestir eru hjartanlega velkomnir. Samkoman er fyrir alla fjölskylduna. Sjálfsagt þykir að börn taki þátt í samkomum.
Venjubundin samkoma er byggð upp eins og eftirfarandi:
(Peningasöfnun er aldrei viðhöfð á kirkjusamkomum).
Aðrar samkomur:
Gestir eru einnig hjartanlega velkomnir á aðrar kirkjusamkomur sem eru fyrir eða eftir sakramentissamkomu.
Sunnudagaskóli er fyrir 12 ára og eldri eru bekkir aldursskiptir.
Barnafélagið er með almennan kennslufund og aldursskipta bekki fyrir börn á aldrinum 3 til 11 ára.
Þar er einnig gæsla fyrir börn á aldrinum 18 mánaða til 3 ára.
Stúlknafélagið er með aldursskipta bekki fyrir stúlkur á aldrinum 12 til 18 ára.
Konur, 18 ára og eldri eru í Líknarfélaginu.
Prestdæmisfundir eru aldursskiptir fyrir pilta frá 12 ára aldri og fulltíða karlmenn.
Heimaleiðtogar ákveða röð sakramentissamkomu og annarra funda. Með því
að smella hér getur þú komist að hvenær hinir þriggja klukkustunda fundir byrja og hvenær sakramentissamkoma byrjar.
Annað sem gott er að vita.
Heimaeiningar kirkjunnar nefnast deildir eða greinar. Sá sem er í forsvari kirkjusöfnuðar er nefndur biskup eða greinarforseti. Hann er einn af safnaðarmeðlimum og sinnir embættisverkum sínum í sjálfboðavinnu. Prestastétt er ekki launuð, hver og einn er leikmaður og öll embætti kirkjunnar byggjast á sjálfboðaliðavinnu.
Þeir sem sækja samkomur klæðast yfirleitt betri fatnaði. Karlar eru t.d. í jakkafötum (eða buxum og jakka) með bindi og konur í kjól eða pilsi. Börn eru einnig í betri fatnaði.
Komdu á samkomu! Þér er hjartanlega velkomið að mæta á samkomur. Samkomur eru á sunnudögum og gestir eru alltaf velkomnir. Þegar þú kemur á samkomu, skaltu kynna þig fyrir einhverjum í söfnuðinum. Hann eða hún mun stuðla að vellíðan þinni og kynna þig fyrir öðrum í söfnuðinum. Óskir þú að kynna þér samkomuhaldið enn frekar áður en þú kemur í kirkju, getur þú fundið upplýsingar um
samkomur hér.
Ræddu við kirkjuþegn sem býr nærri þér. Þegnar Kirkju Jesú Krists hinna Síðari daga heilögu búa um allan heim. Þeir munu með ánægju ræða við alla áhugasama um trú sína og sannfæringu. Þegar þú hittir einhvern eða kynnist einhverjum sem aðild á að kirkjunni, skaltu greina honum frá því sem þú hefur lesið á þessari vefsíðu og ræða við hann um það sem á þeir brennur.
Ef þú þekkir engan í Kirkju Jesú Krists hinna Síðari daga heilögu, væri gott að mæla sér mót við fulltrúa kirkjunnar og ræða við þá um efni þessara vefsíðu. Hringdu í eftirtalin símanúmer ef þú óskar að fá heimsókn fulltrúa kirkjunnar: 565-7559; 588-6463 eða 482-1018. Ef þú vilt fá heimsókn fulltrúa kirkjunnar, skaltu nota eftirfarandi
upplýsingaform. Þeir munu útlista sumar kenningar Krists, sem stuðlað hafa að hamingju annarra.