Kirche Jesu Christi der Heiligen der Letzten Tage

TRÚBOÐSVERK OG VÖXTUR

 

Áhersla Kirkju Jesú Krists hinna Síðari daga heilögu á trúboð er eitt það einkenni sem hvað mestan svip setur á alheimstrúna. Trúboðsstarfið byggir á því fyrirkomulagi sem Biblían greinir frá, að senda út trúboða tvo og tvo saman. Yfir 53.000 Síðari daga heilagir þjóna nú í trúboði í 162 löndum og landsvæðum og nota Mormónsbókarþýðingar á 91 tungumáli.

Flestir trúboðar kirkjunnar eru ungir menn og konur á aldrinum 19 til 23 ára, þótt allmikill fjöldi eldri hjóna starfi einnig í trúboði. Trúboðar eru kallaðir til að starfa í 18 mánuði og upp í tvö ár, á eigin kostnað.

Verðandi trúboðar geta þurft að þjóna hvar sem er í heiminum og þurfa oft að læra nýtt tungumál. Fyrir utan svo sem tveggja mánaða þjálfun í tungumálanámi, fá trúboðar litla beina þjálfun áður en þeir fara til þjónustunnar. Þekkingu sína hafa þeir í flestum tilvikum öðlast á heimilum sínum og byggja á persónulegri sannfæringu sem þróast hefur um árabil.

Á trúboðsakrinum kenna trúboðarnir bæði úr Biblíunni og úr Mormónsbók – Annað vitni um Jesú Krist. Þegnar kirkjunnar eru stundum kallaðir „Mormónar“ vegna trúar þeirra og vegna þess að þeir hafa meðtekið þá helgu bók sem ritningu og nota hana jafnhliða Biblíunni.

Þótt trúboðarnir kenni hverri þeirri persónu sem í einlægni vill hlusta, vilja þeir þó helst kenna fjölskyldum, enda er það innan fjölskyldunnar sem kenningar og reglur Síðari daga heilagra njóta sín best.

 

Meiri upplýsingar fyrir fréttamiðla

Nokkrar lykilstaðreyndir
Skipulag og stjórnun