Kirche Jesu Christi der Heiligen der Letzten Tage



SKIPULAG OG STJÓRNUN

 

Eitt það áhugaverðasta við Kirkju Jesú Krists hinna Síðari daga heilögu, er sú staðreynd að nærri eingöngu er um sjálfboðaþjónustu að ræða hjá hinum þréttán milljón kirkjuþegna.

Forseti kirkjunnar, tveir ráðgjafar hans og ráð postulanna tólf bera ábyrgð á þjónustu kirkjunnar um allan heim, eftirliti hennar og stefnu. Þessir aðalvaldhafar hafa aðsetur í höfuðstöðvum kirkjunnar í Saltvatnsborg, Utah, Bandaríkjunum. Æðsta forsætisráðið og hinir tólf ferðast oft um heiminn til að eiga samskipti við svæðisleiðtoga og kirkjuþegna.

Kirkjan skiptir heiminum í 30 svæði til hagræðingar í stjórnun. Reyndum kirkjuleiðtogum er falið að hafa umsjón með starfi kirkjunnar á hverju svæði.

Albanía, Austurríki, Bahrain, Bosnía, Króatía, Kýpur, Tékkland, Danmörk, Egyptaland, Finnland, Þýskaland, Grikkland, Ungverjaland, Ísland, Íran, Írak, Jórdanía, Kósovo, Kúveit, Líbanon, Moldavía, Svartfjallaland, Noregur, Óman, Pólland, Qatar, Rúmenía, Sádi Arabía, Slóvakía, Slóvenía, Svíþjóð, Sviss, Sýrland, Sameinuðu arabísku furstadæmin og Yemen falla undir Mið-Evrópusvæðið.

Stikuforseti er yfirmaður stiku, en í henni eru milli 2000 og 4000 kirkjuþegnar. Hann tilnefnir embættismenn í stikunni sér til aðstoðar við að þjálfa svæðisleiðtoga. Stikuforseti og aðrir embættismenn í stikum og deildum eru ólaunaðir. Flestir kirkjuþegnar, karlar, konur og æskufólk, gegna einhvers konar embætti eða ábyrgð. Kirkja Jesú Krists hinna Síðari daga heilögu einnkennist af því að allir kirkjuþegnar taka þátt í þjónustu við söfnuðinn. Þjónusta getur falist í ýmsu, t.d. stjórnun, ráðgjöf, kennslu (fullorðinna, unglinga eða barna), heimsóknum, trúboðsstarfi eða skipulagi félagsstarfs eða þjónustuverkefna.

Greinarforseti er yfirmaður heimasafnaðar. Yfirleitt er hann fjölskyldumaður og eins og allir aðrir embættismenn er hann ólaunaður. Hann þarf að stunda atvinnu sína ásamt því að þjóna greinarmeðlimum á kvöldin og um helgar.

Fjölskyldan er grunneining deildar. Kirkjan kennir að best sé að kenna hin mörgu gildi lífsins innan fjölskyldunnar. Mikil áhersla er lögð á fjölskylduábyrgð með kirkjuna að þungamiðju, til að stuðla að félagslegum, tilfinningalegum, vitsmunalegum og andlegum þroska allra í fjölskyldunni.

 

Meiri upplýsingar fyrir fjölmiðlar

Nokkrar lykilstaðreyndir
Trúboðsverk og vöxtur