Fréttir - 25.01.2010 |

Fabiola Beauvil heldur á fjögurra daga gamalli dóttur sinni, Klaira Eliska, í Síðari daga heilagra samkomuhúsi Central deildarinnar í Port-au-Prince, Haítí. Fæðingarhríðir Beauvil hófust í stóra skjálftanum sem átti sér stað á Haítí.
Æðsta forsætisráð Kirkju Jesú Krists hinna Síðari daga heilögu gaf út eftirfarandi yfirlýsingu föstudaginn 22. janúar 2010 í Bandaríkjunum. Yfirlýsingin er til allra kirkjuþegna í Ameríku og út um allan heim:
„Hjörtu okkar hafa fyllst af sorg er við höfum fylgst með þjáningunum á Haítí í kjörfar hins hræðilega jarðskjálfta sem reið yfir eyjuna nýlega. Við snúum okkur að fordæmi Jesú Krists sem „rétti ... úr máttvana höndum og magnþrota knjám.“ Við erum mjög meðvitaðir um það að margir í Ameríku takast á við fjárhagslega erfiðleika sem afleiðingu af kreppunni. Þrátt fyrir það gerum við ákall til kirkjuþegna að gefa framlög, eins og hver og einn ræður við, til mannúðarþjónustu kirkjunnar til hjálpar bræðrum okkar og systrum á Haítí. Margir hafa nú þegar gefið framlög og aðrir vilja gera hið sama.
Ekki er einvörðungu þörf fyrir fjármagn á Haítí. Fólk er óttaslegið, ráðvillt og algjörlega óvisst um framtíð sína. Hægt er að veita aðstoð með matvælum, vatni og athvarfi en að auki er hægt að veita hrjáðri þjóðinni aðstoð með friðandi áhrifum. Við biðjum fólk okkar hvarvetna að biðja Guð auðmjúklega fyrir því að hann sendi anda stillingar og friðar til þessa fólks er aðkallandi hjálp og uppbygging heldur áfram.“
Kirkjuþegnar geta gefið framlög til hjálparstarfsins í deildum sínum og greinum með því að merkja við mannúðaraðstoð á framlagsseðlum kirkjunnar. Þegnar annarra kirkna geta einnig gefið framlög á vefslóðinni give.lds.org/emergencyresponse.