Fréttir - 20.05.2008 |
Viðmælandi:
„Hvers vegna truflar það þig að vísað sé til Mormóna í tenglsum við fjölkvæni?”
Öldungur Cook:
„Í fyrsta lagi, veldur það miklum miskilningi. Við fengum nýlega símtal frá þekktum fréttamiðli, sem bað um leyfi til að kvikmynda fjölkvænismusteri innanvert sem er alls ekki á okkar snærum. Annar afar virtur fréttamiðill sýndi myndir af Salt Lake musterinu – musterinu okkar – og skrifaði grein við hlið hennar um fjölkvænishópa. Miskilningur þessi skaðar okkur og gefur lesandanum ekki rétta mynd af hlutunum. En hver er þá hin rétta mynd af hlutunum? Þegnar Kirkju Jesú Krists hinna Síðari daga heilögu – sem oft eru nefndir Mormónar – iðka ekki fjölkvæni; og hafa ekki iðkað fjölkvæni í meira en öld. Að nefna Mormóna í tengslum við fjölkvænisiðkun er mjög villandi fyrir almenning – sem kirkjan hefur áhyggjur af, því þegnar hennar taka ekki þátt í fjölkvæni – og kemur í veg fyrir að lesendur geti gert greinarmun á okkur og fjölkvænishópum. Geri fólk sér grein fyrir að þegnar kirkjunnar eru 13 milljónir talsins, áttar það sig á að þessir fjölkvænishópar eru afar fámennir. Ekki er gerður nógu góður greinarmunur á þessu og það hefur ekki hjálpar að nafnið Mormónar sé haft í fyrirsögnum. Ég vil skora á fjölmiðla. Við höfum átt fund með þeim og í flestum tilvikum reyna þeir að gera sitt besta. Ég vil skora á þá, fyrir hönd kirkjunnar, að gera skýran greinarmun á þessu, að nota ekki hugtakið Mormónar í tengslum við fjölkvæni; að bendla Kirkju Jesú Krists hinna Síðari daga heilögu – kirkju Mormóna – ekki við fjölkvæni. Þessir hópar eru algjörlega aðskildir okkur og allir fengju greinarbetri mynd af hlutunum, ef fjölmiðlar létu af þessu, við yrðum þakklátir fyrir það.
Yfir 13 milljón manns eru í kirkjunni, sem dreifðir eru um heim allan; og meira en helmingur þeirra eru utan Bandaríkjanna, sem að stórum hluta eru trúskiptingar. Þegnum kirkjunnar hefur fjölgað úr rúmlega 6 milljónum árið 1987 í yfir 13 milljónir í dag – og eiga alls engin tengsl við fjölkvænishópa. Fólk þetta [þegnar Kirkju Jesú Krists hinna Síðari daga heilögu] býr innan um almenning í löndum sínum, og fréttamiðlar skrifa oft – stundum umhugsunarlaust – eitthvað sem bendlar þá við fjölkvænishópa, á einhverjum tilsettum tíma. Við vitum til að mynda af grein í afar virtum áströlskum fjölmiðli sem hófs á þessum orðum: ‚Meðal bókstafstrúar Mormóna þurfa börn að sæta lítilli menntun, reglubundnum barsmíðum og miklum aga og eru þvinguð til heimilisverka og hjónabönd eru ráðgerð fyrir stúlkur á unlingsaldri sem þurfa að sýna undirgefni alla ævi.’ Ekkert er fjarri sannleikanum hvað þegna kirkjunnar varða. Ég ætla að koma með þrjú dæmi til að útskýra mál mitt:
- Í fyrsta lagi, er menntunarstig þegna kirkjunnar afar hátt. Forystumenn kirkjunnar hafa stöðugt hvatt til menntunar og á þessum tímapunkti hafa nærri 60 prósent allra meðlima í Bandaríkjunum einhverja framhaldsskólamenntun, en meðaltal alls landsins er aðeins um 50 prósent. Þegnar kirkjunnar eru því vel menntaðir.
- Í öðru lagi, eru hjónabönd alls ekki ráðgerð. Þegnar kirkjunnar fara hefbundnar leiðir við að finna sér lífsförunaut. Þeir velja sér hann sjálfir og meðal giftingaraldur er um 23 ára – aðeins hærri hjá karlmönnum. Engin hjónabönd eru ráðgerð meðal þessa hóps.
- Í þriðja lagi, eru þeir meðal alla atvinnustétta í löndum sínum. Þeir lifa ekki aðskildir frá öðrum í samfélögum sínum. Þeir eru ekki á nokkurn hátt einangraðir. Þeir hvorki klæða sig né greiða sér öðruvísi eða eru á nokkurn hátt aðgreinanlegir í samfélögum sínum. Þegar maður því les svona nokkuð – þar sem fjölkvæni er ekki iðkað meðal okkar og þegnum okkar er óheimilt að taka þátt í slíku og yrðu vísað úr kirkjunni ef þeir iðkuðu slíkt – veldur það þegnum kirkjunnar miklum áhyggjum. Af þessum ástæðum andmælum við slíkum skrifum.”