Kirche Jesu Christi der Heiligen der Letzten Tage
Fréttir - 25.11.2007

 

Viðbætur við FamilySearch

FamilySearch bætti við umfangsmikið Gyðinga ættfræðisafn sitt með nýrri Jewish Family History Resources á netinu. Þetta var tilkynnt í tengslum við 27th International Association of Jewish Genealogical Societies Conference í Salt Lake City 15.-21. júlí.

Nýja netsíðan hefur að geyma nýjan ættfræðigrunn Gyðinga, Knowles safnið, ásamt nýjum rannsóknarleiðbeiningum, Tracing Your Jewish Ancestors. Nálgast má þetta nýja efni gjaldfrjálst á FamilySearch.org. FamilySearch leggur til fjöldann allan af gjaldfrjálsum tækjum og rannsóknargrunnum fyrir alla sem kanna ættfræði Gyðinga.

Knowles safnið hefur að geyma upplýsingar um þúsundir Gyðinga frá Bretlandseyjum. Byggt er á verki Isobel heitins Mordy, og safnið tengir einstaklinga í fjölskylduhópa og fleiri nöfnum er sífellt bætt við. Safnið er aðgengilegt sem skjal sem hægt er að skoða og vinna með í flestum ættfræðforritum. Ættfræðiforrit eru einnig fáanleg gjaldfrjálst til niðurhölunar.„The Tracing Your Jewish Ancestors guide er framúrskarandi ókeypis rannsóknartæki fyrir alla sem eiga forfeður af Gyðingaættum sem komu til Bandaríkjanna frá Evrópu,“ segir Paul Nauta, stjórnandi almannatengsla hjá FamilySearch. „Notundur munu geta fylgt auðveldum þrepum til að finna fæðingarstað eða upprunastað – sem er erfitt verk fyrir marga af Gyðingaættum,“ bætti bróðir Nauta við. Leiðbeiningarnar hafa að geyma fyrirmæli um hvaða skjöl ætti að rannsaka fyrst, að hverju á að leita, og hvaða rannsóknartæki að nota. Í þeim eru 30 litríkar blaðsíður með dæmum og þar er mikið af hjálparatriðum. Stafræna skjalið er fáanlegt í hágæða, PDF skjali sem auðvelt er að nota. Hið vinsæla Jewish Genealogy Research Outline hefur einnig verið endurskoðað og er fáanlegt án endurgjalds.Meðal annars sem FamilySearch Jewish Family History Resources hefur á að skipa má nefna: 

  • Tengingar til viðeigandi skjala og gagnagrnna sem hægt er að kanna.
  • Gagnlegar leiðbeiningar og form sem skoða má á netinu eða útprentuð.
  • Skráningarverkefni á netinu, þar sem einstaklingar geta skráð sig til sjálfboðastarfa eða til að sjá hvaða gagnagrunnar eru í vinnslu.
  • Endurgjaldslaus ættfræðiforrit.
  • Leiðbeiningar til að fá ókeypis ættfræðiþjónustu frá ættfræðimiðstöð í nánd við rannsakandann.

Þeir sem eru af Gyðingaættum ættu að merkja síðuna sem tengil. Tenglum til nýrra gagnagrunna og verkfæra verður bætt við jafnskjótt og þeir verða fáanlegir.