Kirche Jesu Christi der Heiligen der Letzten Tage
Fréttir - 20.03.2009

 

Verðlaunin Fjölskyldu gildi afhent á breska þinginu

Breska þinghúsið í London

Breska þingið var mjög virðulegur bakgrunnur fyrir afhendingu verðlauna Kirkju Jesú Krists hinna Síðari daga heilögu sem ber nafnið Fjölskyldu gildi.  Var þetta í fyrsta skiptið sem verðlaunin voru afhent í neðri málstofu breska þingsins. Verðlaunin eru veitt árlega af kirkjunni í Bretlandi.

Verðlaunin hlaut háttvirti þingmaður John Battle MP, sem þjónaði sem erindreki Tony Blair, fyrrverandi forsætisráðherra, til allra trúarsamfélaga í Bretlandi.  Verðlaunin eru veitt „samfélagsþegnum sem hafa unnið eftirtektarverð afrek sem styðja fjölskylduna.“

Atburðinum var stjórnað af þingmanninum Terry Rooney og meðal gesta voru þegnar breska löggjafarþingsins, virtir leiðtogar úr háskólasamfélaginu og skoðanamótandi leiðtogar með sérfræðiáhuga á fjölskyldumálefnum.

„Við hyllum hvert ykkar fyrir framlagið sem þið veitið,“ sagði öldungur Stephen Kerr, svæðisvaldshafi sjötíu í kirkjunni, er hann talaði við sérstaka hádegisverðinn í þinghúsunum.

Hann bætti við: „Stofnunin sem mun bjarga okkar brostna samfélagi er ekki þingið heldur heimilið.“  Síðan vitnaði hann í fyrrverandi forseta kirkjunnar, Harold B. Lee forseta og sagði: „„Mikilvægasta verkið sem þú munt nokkru sinni vinna verður innan veggja þíns eigin heimilis“ – þess vegna munum við halda áfram að halda uppá fjölskyldugildin.

Rooney lýsir þingmanninum John Battle sem „baráttumanni fyrir fjölskyldur undir álagi.“  Í gegnum tíma sinn í stjórnmálum hefur Battle notað áhrif sín til að berjast fyrir velferð, gegn fátækt og fyrir fjölskyldumálum og hefur leitast við að ná jafnvægi milli vinnu sinnar og tíma með fjölskyldunni – leitast fyrst og fremst eftir að vera góður eiginmaður og faðir.

„Stöðugt fólk býr til stöðug sambönd,“ undirstrikaði Battle.  „Við höldum stöðugleika með því að fá stuðning frá fólkinu í kringum okkur.  Ég vil þakka kirkjunni og þakka þér Terry [Rooney].  Þetta er búið að vera mjög sérstakt tilefni á þessum stað og í sæti lýðræðisins.“

Battle er trúfastur rómversk-kaþólskur og eiga þau hjónin einn son og tvær dætur.  Hann þjónar í dag í alþjóðarþróunarnefnd breska þingsins.
Einnig var Jill Kirby, framkvæmdastjóri Centre for Policy Studies, eins þekktasta sérfræðingarráðs Bretlands, heiðruð.

„Ég finn fyrir miklum stuðningi í verki kirkju ykkar við að deila þeim gildum sem við lítum á sem mikilvæg,“ sagði hún eftir að hún hlaut verðlaun sín.  „Það er mikið verk framundan við að bæta vinnu fjölskyldulífs í Bretlandi í dag.“

Kirby var stofandi og formaður Mæðra í fullu starfi, sem kröftuglega barðist fyrir því að mæður eigi að hafa þann valkost að vera heima við að sinna börnum sínum og hefur unnið að stefnumótun þeim til stuðnings í því efni.

Hún hefur stutt rannsóknir og skrifað ítarlega um mikilvægi hjónabands og fjölskyldunnar.  Skuggaráðuneytið sem og fjölmiðlar sækjast oft eftir persónulegum skoðunum hennar og yfirsýn á fjölskylduna.

Verðlaunaafhending Fjölskyldu gilda 2009 er fimmti atburðurinn sem haldinn er í London og skipulagður af almannatengsladeild kirkjunnar í London.  Fyrri verðlaunahafar eru meðal annars Mary Crowley MBE, forstjóri Parent UK og háttvirti Paul Boateng, fyrrverandi aðalritari fjármálaráðuneytisins.