Kirche Jesu Christi der Heiligen der Letzten Tage
Fréttir - 13.03.2010

 

Vefsíða kirkjunnar leiðir saman æskufólk um heim allan

Hinn 9. janúar 2010 opnaði Kirkja Jesú Krists hinna Síðari daga heilögu nýja vefsíðu fyrir æskufólk. Með því að fara á www.youth.lds.org, getur æskufólk lesið persónulegar sögur, skoðað ljósmyndir, horft á myndbönd og haft samskipti við hvert annað.  Vefsíða þessi leiðir saman æskufólk (í fagnaðarerindinu) um heim allan.  Vefsíðunni er ætlað að veita æskufólki innblástur og hjálp í daglegu lífi.

Á vefsíðunni er hægt að skoða fjóra mismunandi flokka:

"Til æskufólks okkar tíma" sem hefur að geyma innblásinn boðskap frá kirkjuleiðtogum til æskufólks sem oft er prýddur ljósmyndum, hljóði og myndböndum.

"Til styrktar æskunni" sem hefur að geyma greinar eftir unga meðlimi kirkjunnar um heim allan um hvernig líf þess hefur verið blessað við að lifa eftir fagnaðarerindinu og fylgja Jesú Kristi. Þar er einnig að finna 10 fjölmenningarleg og fjöltyngd myndbönd um staðla kirkjunnar fyrir æskufólk hennar .  Hlutinn Við berum vitni hefur að geyma andlitsmyndir af æskufólki sem gestir síðunnar geta smellt á til að lesa trúarstyrkjandi orð sem viðkomandi hefur skrifað.

"Boðskapur mormóna til æskufólks" hefur að geyma myndbönd með orðum lifandi spámanna og annað mikilvægt efni sem æskufólk hefur nú þörf fyrir.

"Frá öllum þjóðum" hefur að geyma sögur æskufólks um heim allan sem fylgir Jesú Kristi í sínu daglega lífi. Sögur þessar eru stuttar greinar, prýddar myndböndum, ljósmyndum og hljóðupptökum.

Youth.lds.org  er miðill fyrir æskufólk til að fylgjast með hvert öðru lifa eftir reglum fagnaðarerindisins í heimi sem fullur er af öllu mögulegu sem ekki styður þær reglur, einkum því sem finna má í flest öllum fjölmiðlum.  Ani Avanesjan, 16 ára, stúlka í Þýskalandi, sagði þetta um hina nýju vefsíðu: "Mér finnst það dásamleg hugmynd að sýna æskufólki fram á að það sé ekki eitt hér í heimi. Það eru svo margir frábærir einstaklingar sem haft geta áhrif á aðra með því að brosa. Ég gleðst og er hrærð yfir að sjá annað ungt fólk miðla tilfinningum sínum og greina frá lífsreynslu um það hvernig himneskur faðir hefur hjálpað því að sigrast á erfiðleikum. Sérhver vitnisburður er gjöf frá Guði og eflir minn eigin vitnisburð dag frá degi".

Vefsíðan verður uppfærð reglubundið með nýjum upplýsingum og mikilvægum boðskap fyrir æskufólkið. Vefsíðan er aðeins á ensku eins og er, en á þessu ári verður hafist handa við að þýða hana yfir á mörg önnur tungumál.

Kirkjuleiðtogar hvetja foreldra og leiðtoga æskufólks til að nýta sér efni vefsíðunnar í tengslum við fjölskyldukvöld, lexíur og persónulegar umræður. Æskufólk er hvatt til að greina vinum sínum frá vefsíðunni og einnig til að láta að sér kveða á síðunni og leggja þannig sitt af mörkum við að efla annað ungt fólk.