Fréttir - 28.04.2011 |
Kirkjan tekur ættfræði alvarlega. Yfir 10 milljónir smella á kirkjuvefsíðuna FamilySearch.org á degi hverjum, sem ber vott um áhuga kirkjumeðlima og þær mörgu vinnustundir sjálfboðaliða og helga sjóði sem ætlað er til framrásar verkinu, ekki aðeins í þágu þeirra eigin áa, heldur einnig til að aðstoða fólk um heiminn við ættarsögurannsókn þess.
Í 110. kafla í Kenningu og sáttmálum er því lýst yfir að einn stórkostlegasti spádómur um síðari daga hafi uppfyllst er spámaðurinn Elía birtist Joseph Smith og Oliver Cowdery í Kirtland-musterinu, til að endurreisa valdið til að innsigla fjölskyldur á jörðu.
Familysearch.org er ein vinsælasta ættfræðivefsíða í heiminum.
Yfir 150 milljónir einstaklinga hafa komið á síðuna frá setningu hennar 1999. Fyrsta vefsíðan sem kemur upp við leit á "genealogy research" í Google er FamilySearch.org. Vefsíðan er gerð út af Kirkju Jesú Krists hinna Síðari daga heilögu og er almenningi gjaldfrjáls.
Yfir milljarður nafna eru á leitarheimildunum á síðunni og auðvelt er að finna mörg nöfn þar sem sjálfboðaliðum hafa útbúið atriðaskrá. Sem stendur eru 125.000 skrásetjarar víða um heim sem skrá um milljón nöfn á dag. Engu skiptir hver trúarbrögð einstaklinga eru, aldur eða tæknikunnátta, kirkjan býður öllum að taka þátt í skráningunni; allt sem þarf er aðgangur að Alnetinu og talva. Beinlínu aðgangur er fyrir hendi á sjö tungumálum á Familysearch. org.
Leyndarmálið er opinbert um FamilySearch.org því yfir 15 milljarðar hafa smellt á síðuna frá setningu hennar. Heimildaleit um áa getur verið skemmtileg og vanabindandi. Dessa Fountaine, ættfræðileiðbeinandi í West Jordan Utah Bingham Creek stikunni, sagði: "Heimildirnar eru svo margar um áa okkar á vefsíðunni. Á einum mánuði fyllti ég fimm sentímetra þykka möppu af skjölum um fæðingar, dauða og giftingar, sem og æviágripum, fyrir yfirmann minn."
Á síðunni er hægt að fá hjálp frá fagfólki Family-Search til leitar og leiðsagnar. Fólk getur líka miðlað öðrum ættarsögu sinni.
Systir Fountaine sagði: "Þegar þið skoðið ættartréð á síðunni, getið þið séð hvort einhver annar ættingi ykkar er að vinna að ættarsögunni. Það er frábært að koma á síðuna."
FamilySearch er fáanlegt fyrir bæði reynda og óreynda ættarsöguskrásetjara. Hægt er að fá hjálp bæði hjá meðlimum sem og á Alnetinu. Þá hjálp er hægt að fá í ættfræðisöfnum eða með því að hafa samband við aðstoðarfólk FamilySearch á support@familysearch.org.