Fréttir - 12.02.2010 |
Nýlega urðu þúsundir þorpsbúa að flytjast á brott frá heimilum sínum í Shkodër héraði, þar á meðal Ana e Malit og Dajac, í Albaníu vegna mikilla flóða. Þau fórnarlömb í norður Albaníu sem neyddust til að yfirgefa heimili sín fengu gefins matvæli. Þúsundir hektara af ræktanlegu landi fóru undir vatn þegar tæplega tveggja metra djúpt vatnsflóðið eyðilagði gróðurhús, heimili og bóndabýli. Margir íbúar hikuðu við að yfirgefa heimili sín þar sem þeir óttuðust að missa búfénað sinn sem er undirstaða tekjuöflunar í dreifbýli Albaníu. Þann 21. janúar færðu fastatrúboðar Kirkju Jesú Krists hinna Síðari daga heilögu Rauða krossinum í Albaníu 20 tonn af hveiti, pasta, hrísgrjónum, baunum, sykri og matarolíu.
Trúboðar sem þjóna í Tirana trúboðinu í Albaníu affermdu poka og ílát af matvælum í vöruhús Rauða krossins. Matvæli þessi höfðu verið keypt á svæðinu. Kaupin, flutningurinn og stjórnunin á mannúðarhjálpinni voru skipulögð af öldungi Peter B. Snow og systur Ruth Lynne Snow, velferðartrúboðum sem þjóna í Albaníu.
John M. Neil forseti Tirana trúboðsins í Albaníu og systir Elizabeth Neil voru viðstödd þegar matvælin voru afhent Artur Katuçi, yfirmanni þróunarmála hjá Rauða krossinum í Albaníu. Artur Katuçi lýsti þakklæti í garð kirkjunnar fyrir gjafir þeirra og sagði að matvælin myndu hjálpa að brauðfæða um 2,500 fjölskyldur í um þrjá til fjóra mánuði. Þessar fórnarlömb búa nú í tímabundnu húsnæði í Shkodër héraði.
Zamir Muça, aðalféhirðir Rauða krossins í Albaníu sagði eftirfarandi þegar matvælin voru afhend: "Fyrir hönd Rauða krossins í Albaníu langar mig að þakka ykkur fyrir rausnarlegan stuðning sem Líahóna stofnun Kirkju Jesú Krists hinna Síðari daga heilögu hefur veitt fórnarlömbum flóðanna í Shkodër héraðinu. Við viljum fullvissa ykkur um að framlagi ykkar verður dreift af Shkodër deild Rauða krossins til raunverulegra fórnarlamba. Aftur vil ég þakka ykkur kærlega fyrir að sameinast okkur við að létta á þessu neyðarástandi og hjálpa hinum nauðstöddu."
Kirkja Jesú Krists hinna Síðari daga heilögu er kristin kirkja sem telur rúmlega 13,5 milljónir þegna um heim allan. Höfuðstöðvar kirkjunnar eru í Salt Lake City, Utah, þar sem vetrar Ólympíuleikarnir voru haldnir árið 2002. Kirkjan hefur verið í Evrópu frá árinu 1837 og í dag eru rúmlega 450,000 kirkjuþegnar í Evrópu sem tilheyra rúmlega 1,300 kirkusöfnuðum.
Frá árinu 2004 hefur kirkjan veitt mannúðaraðstoð í Albaníu. Meðal annars hefur sá stuðningur verið lækningatæki, aðföng og þjálfun, fatnaður, matvæli, sængurfatnaður fyrir sjúkrahús, þróun samfélaga, skór, teppi, skólabækur, hjólastólar, bókasafnsvörur, leikskólavörur, eldhúsvörur, augnlækningar, kamínur, þjálfun í tannumhirðu og þjálfun í fjölskyldumálum.