Fréttir - 21.09.2009 |

Almannatengsla fulltrúi kirkjunnar tekur viðtal við Gorm Halskov úr bæjarstjórn Randers.

Frá vinstri: Jonna Pirenen, Meri og Kukka Fristrom í viðtali við blaðamanninn Lisbeth Stryhn frá Randers Amtsavis.
Nærri því 400 ungmenni klædd í gul vesti létu hellidembu ekki hafa áhrif á eldmóð sinn er þau reiddu fram mjög sterkar hjálpandi hendur í Randersborg í Danmörku þann 30. júlí síðastliðinn.
„Þið eruð nú að taka þátt í sögunni. Þetta eru stærsti atburður hjálpandi hendur mormóna sem við höfum nokkur sinni staðið fyrir í Danmörku,“ sagði skipuleggjandinn Kim Holst sem sem tilheyrir Árhúsarstiku í Danmörku. Eftir verkefnið kom í ljós að þetta var stærsti Evrópuatburður hjálpandi handa mormóna sem haldin hefur verið á einum stað á eina og sama deginum.
Þessi atburður var aðal athöfnin á þriðja degi Fest i Nord, sem er árleg hátíð ungs fólk á Norðurlöndunum og haldinn hefur verið í 20 ár. Fjögurra daga hátíðin hefur að geyma athafnir eins og íþróttir, söng, dans og mismunandi námskeið. Í ár sóttu hátíðina þátttakendur frá rúmlega 20 löndum, þar á meðal frá heimsálfum Norður- og Suður-Ameríku.
Randers borg lagði í verkefni rúmar tvær og hálfa milljónir íslenskra króna sem fór að stærstum hluta í kostnað vegna sjö skólarútna, leðurhanska og sérstakra öryggisvesta fyrir áköfu gestina.
Gorm Halskov, borgarstjórinn í Randers, ávarpaði þátttakendurna í stórum sal þar sem hann lagði útlínurnar á verkefni dagsins rétt áður en haldið var í skólarúturnar. Síðar sagði hann ákafur um sjálfboðaliðana.
„Unga fólkið vann mikið starf,“ sagði hann. „Þau hreinsuðu mjög vel og var allt rusl tekið, líka litlu hlutirnir eins og flöskutappar og sígarettu stubbar. Þetta var áhrifamikil sjón, þau hreinsuðu samtals 1200 kíló af rusli þrátt fyrir hellirigningu.“
Þjóðarframkvæmdastjóri almannatengsla í Danmörku, Jesper Paulsen, var hugtekinn af þeirri jákvæðu fjölmiðlaumfjöllun sem verkefnið hlaut. „Bæði Fest i Nord ráðstefnan og hjálpandi hendur mormóna hafa reynst frábærir viðburðir,“ sagði hann. „Tvær danskar sjónvarpsstöðvar hafa verið að sýna frá atburðinum. Ríkisútvarpið var með viðtal við tvö ungmenni í beinni útsendingu. Einnig hafa nokkur dagblöð á svæðinu og á Alnetinu fjallað um [hjálpandi hendur mormóna] verkefnið.“
Dagblaði í Randers, Amtsavis, tók viðtöl við þó nokkur ungmenni og skýrði frá jákvæðu viðhorfi þeirra og lífstíl. Þann 28. júlí, áður en Fest i Nord hófst, birti blaðið eftirfarandi: „Það verða partý með tónlist og dansleikjum en stærsti munurinn er sá að unga fólkið hvorki reykir, drekkur né er í eiturlyfjaneyslu.“ Eitt ungmennið sagði blaðinu að það að vera saman og gera eitthvað skemmtilegt sem hefur áhrif á líf annars fólks er frábær reynsla sem krefst ekki örvandi efna.
Ein dönsk ung kona, Sarah Holm Larsen, endurspeglaði viðhorf nærri allra ungmennana: „Það er mjög gott og gaman að vinna í þessu hjálpandi hendur verkefni. Það er svo frábært að vera saman með öðru ungu fólki.“
Öll ungmennin greiddu fyrir ferðalagið á hátíðina sjálf og til að kostnaðurinn yrði viðráðanlegur ótvegaði borgin þeim gistingu í stórum framhaldsskóla í Randers, þar sem hann var ekki í notkun vegna sumarleyfa. Sett var upp bráðabirgða svefnaðstaða í stórum kennslustofum með því að færa borð og stóla fram á ganga. Stórt tjald var tekið á leigu og reist fyrir framan svefnaðstöðuna þar sem ungmennin fengu máltíðir sínar sem reiddar voru fram af öðrum sjálfboðaliðum kirkjunnar.
Allar ræður og athafnir fóru fram á ensku sem var eina sameiginlega tungumál allra. Þrátt fyrir það mátti heyra fjöldan allan af tungumálum með mismunandi hreim á göngunum sem setti sannkallaðan alþjóðlegan blæ á hátíðina.
Öldungur Robert C. Oaks úr annarri sveit hinna Sjötíu opnaði formlega hátíðina með innblásnu ávarpi. Þetta var ein af síðustu skyldum hans sem forseti Evrópusvæðisins áður en hann hélt aftur til Bandaríkjanna nú í sumar.