Fréttir - 28.08.2011 |
Snemma í sumar komu rúmlega 30 ungmenni í Kirkju Jesú Krists hinna Síðari daga heilögu saman til að leggja sitt af mörkum við að halda umhverfinu hreinu. Þau fengu úthlutað pokum og vestum og héldu svo af stað við að hreinsa umhverfið við Ásabraut í Garðabæ. Á rétt um klukkustund söfnuðu þau rúmlega kerru fylli af alls kyns rusli sem safnast hafði í umhverfinu.
Eftir hreinsunina, sem gekk mjög rösklega enda allir ánægðir að fá tækifæri til að hjálpa til, var öllum boðið upp á léttar veitingar. Það kom flestum að óvart hversu mikið af rusli hefði verið týnt á svo skömmum tíma og voru allir tilbúnir í að taka þátt í slíku þjónustuverkefni aftur.