Fréttir - 06.12.2008 |

Unglingarnir sem tóku þátt í fyrstu landsráðstefnu unglinga í Mongolíu. Þau koma saman frá öllum landshornum til þess að blanda geði og auðgast andlega.
Í borginni Yanzaga, sem er norðan við höfuðborgina, söfnuðust 450 piltar og stúlkur saman ásamt leiðtogum sínum á fyrstu landsráðstefnu unglinga í Mongolíu. Unglingarnir nutu þess að taka þátt í námskeiðum og öðrum athöfnum, á ráðstefnunni, sem haldin var í ágúst, sem jók andlega, félagslega og tilfinningalega velferð þeirra.
Frá því kirkjan var samþykkt í Mongolíu árið 1993 þá hafa verið haldnar smærri svæðisbundar ungmennafélagsráðstefnur en þetta var sú fyrsta þar sem unglingar frá öllum landshornum voru saman komnir. Sumir þurftu að ferðast í 28 klukkustundir til að geta tekið þátt.
Ráðstefnan snérist að miklu leyti um þema unglinganna fyrir árið 2008 sem er að finna í Mósía 5:15: „að þér séuð staðföst og óbifanleg og rík af góðum verkum.“
Unglingarnir tóku þátt í námskeiðum þar sem þeim var kennt um ritningarnar, musterið, trúarskólann, ættfræði, hegðun á stefnumótum og að vera góður ríkisborgari. Íþróttir og dans voru einnig í boði á ráðstefnunni.
Hæfileikasýningin hafði að geyma marga þjóðsöngva og dansa.
Í frítímum sínum unnu unglingarnir í þjónustuverki fyrir Enrelth skólann og munaðarleysingjahælið í Darkhan. Þau bjuggu til 32 vattteppi, 50 trefla, 50 skólapoka, 50 poka fyllta af skólavörum og 25 dúkkur sem voru saumaðar af unglingunum.
Einnig notuðu unglingarnir hluta af persónulega tíma sínum til þess að skrifa vitnisburði sína sem síðar var stungið inn í Mormonsbækur fyrir unglingana og trúboðana til að gefa á heimasvæðum sínum.
Þátttakendur, sem ekki voru allir kirkjuþegnar, létu mörg jákvæð orð falla um ráðstefnuna. Altanbileg, 17 ára gamall prestur í Aronsprestdæminu, sagði, „Það var mjög gaman að læra að finna forfeður mína í ættfræðinni.“ Ungi maðurinn er greinartrúboði, talar ensku og hlakkar mikið til þess að fara á trúboð.
Tserenlham, sem er 16 ára gömul Lárberi frá Erdenet, sagði, „Yanzaga er mjög fallegur staður og það eru svo margir unglingar sem ég þekkti ekki í fyrstu en nú hef ég eignast marga nýja vini. Vitnisburðarsamkoman var mjög sérstök og þar fékk ég tækifæri til þess að bera vitnisburð minn.“
Önnur 16 ára gömul stúlka, Uudarmaa frá Zuun-Kharaa, sagði að henni fannst námskeiðið um musterið vera mjög sérstakt og bætti við, „Ég eignaðist marga nýja vini“ sem eiga heima hér og þar í Mongolíu.